Skinfaxi - 01.04.1952, Side 26
26
SKINFAXI
Umf. Dagrenning 40 ára.
Þann 22. júlí síðast liðinn minntist Umf. Dagrenn-
ing í Lundarreykjadal 40 ára afmœlis með veglegum
mannfagnaði 1 félagsheimili sínu að Brautartungu.
Þar mættu um 200, gamlir og nýir félagar, ásamt
gestum þeirra. Þar af 13 stofnenda, en þeir voru 26.
Iiófst fagnaður þessi með samdrykkju kl. 2 og stóð
til kl. 12 með ræðuhöldum, söng og að lokum var
dansað.
Umf. Dagrenning var stofnað 23. júlí 1911. Var ung-
ur Reykdælingur, Jón Ivarsson, nú forstjóri i Reykja-
vik, aðal frumkvöðull að stofnun félagsins. Hann
hafði verið félagi i Umf. Reykdæla frá þvi það var
stofnað á sumardaginn fyrsta 1908, fyrst allra félaga
í Borgarfirði. Hann var nú orðinn kennari í Lundar-
reykjadalnum og skildi vel þýðingu þess, að æsku-
menn í sveitinni tileinkuðu sér hugsjónir Umf. og
ynnu fyrir þær.
Fyrstu stjórnina skipuðu: Jón ívarsson formaður,
má brennistein á þenna liátt, eins og vonir stóðu
til. Er sennilegt að hagkvæmt verði að framleiða
þarna allt að 10 þús. smál. árlega. Auk hrennisteins-
ins fást um leið önnur mikilvæg hráefni til iðnaðar,
svo sem óbundið vatnsefni og kolsýra. Má telja víst,
að þau verði einnig hagnýtt á einn eða annan liátt.
Námafjall er að sjálfsögðu ekki eini staðurinn, þar
sem slík framleiðsla getur átt sér stað, enda þótt
hver þeirra hafi sín séreinkenni. í Suður-Þingeyjar-
sýslu eru þrír aðrir staðir, sem koma til greina, og
á Suðurlandi eru enn fleiri. Gæti vel farið svo, að
jarðgufur yrðu notadrýgri á þessu sviði, en menn
órar nú fyrir.