Skinfaxi - 01.04.1952, Page 27
SKINFAXI
27
Félagsheimili Umf. Dagrenningar lijá Brautartungu. (Vestur-
lilið). Sundlaugin sézt lengst til hægri.
Böðvar Jónsson Brennu, ritari og Elín Vigfúsdóttir
Gullberustöðum, nú húsfreyja á Laxamýri, gjaldkeri.
Helztu viðfangsefni félagsins voru samkomuhúsbygg-
ing, stofnun bókasafns og íþróttaiðkun, auk mál-
funda, útgáfu handritaðs félagshlaðs og skemmti-
starfsemi. Fundirnir voru haldnir i kirkjunni á Lundi
fyrstu árin og þá á bæjum í sveitinni. Fyrsta sam-
komubús félagsins var reist 1916. Bókasafnið var
stofnað á fyrsta ári og hefur vaxið jafnt og þétt.
Telur það nú um 1700 bindi og er metið á rúmlega
kr. 12 þús.
Félagið lióf strax sundiðkun i Grímsá. Nú hefur
það hyggt sundlaug i Brautartungu, en þar er jarð-
hiti og er kostnaðarverð laugarinnar nú um kr. 123
þús., ýmsu er þó óloltið enn. Á sama stað er hráðum
lokið byggingu félagsheimilis. Nemur kostnaðarverð
þess nú kr. 156 þús. Þannig hafa hugsjónir hinna
bjartsýnu æskumanna frá 1911 orðið að veruleika á
mjög glæsilegan hátt. Það er dýrmæt eign hverju
byggðarlagi að eiga á sama stað félagsheimili, sund-
laug og gott hókasafn. En þó umfram allt æsku, sem