Skinfaxi - 01.04.1952, Síða 28
28
SKLNFAXI
kann að hagnýta sér
þessa aðstöðu til aukins
þroska.
Félagið fór vel af stað.
Það átti bæði hugsjónir
og atorkusama forvígis-
menn, sem unnu kapp-
samlega að þeim, og vai’ð
strax mikið ágengt í
störfum sínum. Og nú á
fertugsafmælinu fagnar
það sigri í tveimur stór-
unx hyggingafram-
kvæmdum. Dagrenning
hefur frá upphafi verið
eitt liinna traustustu fé-
laga í U.M.F.I. og jafn-
an tekið mikilsverðan j)átt í starfsemi U.M.S. Borg-
arfjarðar.
Stjórn þess skipa nú: Ingimundur Ásgeirsson frá
Reykjum, nú Hæli í Flókadal, formaður, Kristján Da-
víðsson Oddsstöðum, ritari og Pétur Guðmundsson
Skarði, gjaldkeri. Hefur Ingimundur Ásgeirsson ver-
ið formaður félagsins nú um all langt skeið og á
allra manna mest þátt i þeim byggingaframkvæmd-
um, sem félagið hefur staðið í að undanförnu.
Félagið lelur nú 64 félagsmenn. En alls hafa 214
gerzt félagar. Af hinum 26 stofnendum eru 6 látnir.
Félagssvæðið er Lundaireykjadalur, fremri Iiluti
Skorradals og nokkrir hæir í Andakílslireppi. Skin-
faxi óskar félaginu til hamingju með 40 áiún og flytur
því beztu framtíðaxóskir.
D. Á.