Skinfaxi - 01.04.1952, Blaðsíða 48
48
SKINFAXI
Ungmennafélög!
Áríðandi er að ógreidd áskriftag.jöld fyrir árið 1951 og
eldri séu send strax. Afgreiðsla Skinfaxa þakkar þeim inörgu,
sem sent liafa áskriftagjöldin skilvislega. Minnið félagana á
að gerast áskrifendur, sem cnn hafa ekki gert það.
Frá Umf. Eyrarbakka
er Skinfaxa skrifað: „Árshátíð félagsins var lialdin 15.
janúar og var dagskráin hin fjölbreyttasta. Sýndur var sjón-
leikurinn Húsbóndaskipti, 20 manna félagskór söng, undir
stjórn Guðjóns Guðjónssonar. Tvœr stuttar ræður fluttar, lesið
upp, sýnd kvikmynd og að lokum dansað.
Félagsstarfið hefur verið blómlegt, það sem af er vetri.
Stöðug íþróttakennsla hefur verið, bæði leikfimi og frjáls-
íþróttaæfingar inni. Kennari var Hermann Sigtryggsson frá
Akureyri. Kór félagsins hefur æft söng, talæfingar hafa verið
vikulegar og æfður leikþáttur fyrir árshátíðina, eins og áður
segir. Sennilega hægist um er dregur að vertíð.“
íþróttanefnd ríkisins
hefur senn lokið úthlutun fjár úr íþróttasjóði 1952. Alþingi
veitti til lians kr. 600 þús. en fjárjiörf hans var um síðustu
áramót rúmlega kr. 2 millj. svo miklu munar að liægt sé að
gera upp við alla þá aðila sem styrks njóta úr sjóðnum.
Skrifstofa U.M.F.Í.
er að Lindargötu 9A, efsta hæð. Hún er opin kl. 16—19 á
mánudögum og fimmtudögum. Auk allra venjulegra málefna
U.M.F.f. annast skrifstofan afgreiðslu og innheimtu Skinfaxa.
Útgefandi: Sambandsstjórn Ungmennafélaga fslands.
Pósthólf 406 — Reykjavík.
Afgreiðsla: Edduhúsinu, Reykjavík, efstu hæð.
Ritstjóri: Stefán Júlíusson,
Brekkugötu 22, Hafnarfirði.
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN h.f.