Skinfaxi - 01.11.1953, Side 10
106
SKINFAXI
gaf hann út þrjár bækur eftir fyrri heimkomuna,
Melablóm 1882, Jökulblóm 1883 og Dalarósir 1885,
Voru þetta skáldrit, sögur og kvæði.
Guðmundur kvæntist árið 1897 Hólmfriði M.
Björnsdóttur, ættaðri úr Skagafirði. Eignuðust þau
þrjú börn, tvær dætur og son, en hann dó á fyrsta ári.
Dæturnar giftust báðar og eiga börn. Guðmundur
andaðist í Hafnarfirði 27. janúar árið 1919, 66 ára
gamall. Iiólmfriður lifði mann sinn til ársins 1948.
Guðmundur Hjaltason var í hærra meðallagi á vöxt,
þrekvaxinn heldur og herðamikill, augun gráleit, and-
íitið i fríðara lagi; safnaði fljótt alskeggi. Hann var um
ýmsa hluti sérkennilegur maður, er aldur færðist yfir
hann, hægur í fasi og hógvær, fáskiptinn og háleitur á
göngu. Er hann flutti fyrirlestra, gekk hann tíðum
örlítið um gólf, veifaði hendi og lygndi augunum.
Hann kvað fast að orðum, rómurinn styrkur og nokkuð
hávær. Oftast mun hann hafa talað blaðalaust, enda
var minnið fádæma öruggt og haldgott. Hann var
sínemandi alla ævi, áhugaefnin voru margvísleg, og
hugsjónaeldur ófölskaður til æviloka.
Ungmennafélögin gáfu út sjálfsævisögu Guðmundar
árið 1923.