Skinfaxi - 01.11.1953, Síða 11
SKINFAXI
107
^9n<ýó(^ur (ju(mnncli
óóon .
iVorrrt'ii t
atsk u Itjðsin ó t
i Finnlandi
Dagana 3.—11. júlí í sumar fór fram norrænt æsku-
lýðsmót í Finnlandi. — Mótstaðui’inn var íþróltaskóli
finsk-finnsku íþróttafélaganna þar sem heitir Vieru-
máki. 'Skólinn stendur á undurfögrum stað við lítið
vatn, umkringt skógivöxnum hæðum. Þarna söfnuðust
saman um 60 fulltrúar frá ungmennafélögunum á
Norðurlöndunum fimm.
Ég var einn frá Islandi og var það dálítið einmana-
legt fyrst, en ekki leið á löngu, þar til ég fann að
þarna var ég meðal hræðra og systra, og naut ég sam-
verunnar hið bezta og kynntist mörgu fólki, sem ég
þakka fyrir að hafa kynnzt. Þarna undum við okkur
hið bezta við söng, ræður og umræður á daginn og svo
leiki, íþróttir og þjóðdansa á kvöldin. Þarna voru flutl-
ir nokkrir fyrirlestrar. Má þar nefna m. a: Yfirlit yfir
þróun í Finnlandi á síðari árum. Flytjandi var Arvo
Inlcilá og dró hann upp áhrifamikla mynd af baráttu
Finna við þá feikilegu erfiðleika sem blöstu við þeim í
lok stríðsins og er ekki ennþá að fullu rutt úr vegi.
Einnig fengum við yfirlit yfir starfsemi ungmennafé-
laganna í Finnlandi í sérstökum fyrirlestri. Jens
Marinus Jenssen hélt mjög skemmtilegan fyrirlestur um
Friðþjóf Nansen til þess að sýna okkur, hvernig Danir
reyna að hafa vekjandi áhrif á æskuna með fyrir-
lestrum. Veigamesti þáttur mótsins var framsöguræður
og umræður að þeim loknum. Alls voru haldnar 4
slíkar framsöguræður og skyldi fulltrúi frá hverju
landi annast eina framsöguræðu. Danski presturinn
Sver Dissing frá Vrá talaði um heimilin og ungmenna-
félögin og henti á þá þróun, sem orðið hefur og þær
hættur sem stöfuðu af því að draga fólk frá heimilun-