Skinfaxi - 01.11.1953, Side 12
108
SKINFAXI
um. Þess vegna bæri að hafa
náið samstarf við heimilin
og helzt að láta eitthvað al'
félagsstarfinu fara fram inn-
an veggja heimilanna.
Af hálfu Finna flutti Henry
Bockmar framsöguerindi um
fjáröflun ungmennafélag-
anna.
1 umræðunum komu fram
mismunandi sjónarmið, en þo
var það ljóst, að ekki er hæg’.
að reka þróttmikið æskulýðs-
starf á grundvelli ungmenna-
félaganna án fjárstyrks frá
opinbérum aðilum, og yfir-
leitt vildu menn gera allmikl-
ar fjárveitingakröfur til rík-
isins, en jafnframt leggja áherzlu á, að ríkið verði ekki
of afskiptasamt um starfsemina, meðan hún ekki fer á
villigötur.
Framkvæmdas tjóri finnsk-finnsku ungmennafélag-
anna talaði um starfið meðal yngstu unglinganna og
benti réttilega á þá ábyrgð, sem ungmennafélögin hafa
gagnvart yngstu meðlimum sínum og þeim börnum, sem
ekki ná inngöngualdri en hafa þó þörf fyrir félagslegt
uppeldi.
Svíinn Sam Olovs talaði um hugsjónir æskunnar og
benti á ábyrgð okkar við þá æsku, sem ekki hefur
komizt undir áhrif hollra félaga, lendir á villigötum og
fær ekki þann lífsundirbúning, sem ungmennafélögin
vilja veita meðlimum sínum.
Það féll í minn hlut að tala um boðskap ungmenna-
félaganna en ég mun ekki rekja efnið hér. En umræð-
urnar voru hinar merkilegustu og var ákveðið að taka