Skinfaxi - 01.11.1953, Page 15
SKINFAXI
111
Vöglum. Á milli þessara dagskrárliða söng karlakórinn Heim-
ir, söngstjóri Jón Björnsson, ljóð eftir Stephan G.
Er forsætisráðherra hafði flutt ræðu sína (hann talaði næst
á eftir formanni U.M.S.S.), ávarpaði Eyþór Stefánsson, form.
Stephans G.-nefndarinnar, dóttur skáldsins, frú Rósu Bene-
diktsson, og bað hana að afhjúpa minnisvarðann. Að því loknu
afhenti Eyþór Skagfirðingum og þjóðinni allri minnisvarðann
til eignar og varðveizlu. Þá færði hann frú Rósu Islendinga-
sögurnar að gjöf frá nefndinni, til minningar um daginn og
þennan merkilega atburð.
Að þessu loknu flutti Rósa stutta ræðu og þakkaði alla vin-
semd í sinn garð og heiður þann, er sér og föður sínum hefði
verið sýndur af Skagfirðingum. Sérstaka ánægju lét hún í ljósi
yfir því, að samtök ungmennafélaganna í héraðinu skyldi hafa
haft forgöngu um byggingu þessa myndarlega minnisvarða.
Minnisvarðinn er þrí-
strend varða, hálfur metri
á hæð og um 8 metrar um-
máls að neðan. Randir
hennar eru hlaðnar úr
stuðlabergssúlum, sem rísa
hver af annarri. Stuðla-
bergið er úr sjávarhömr-
um við Hofsós. Hlíðar vörð-
unnar eru úr brimsorfnu
blágrýti úr Naustavík í
Hegranesi. í miðja hlið-
fletina eru hlaðin allstór
hellubjörg úr fjallskriðum
á Reykjaströnd. Þá er'mi«-
litu smágrýti hlaðið með og
er það úr árgili við Fagranes á Reykjaströnd. Loks eru þrír
sólarópalar úr Glerhallavík, sinn yfir hverri hellu.
Þrjár upphleyptar eirmyndir eru festar á vörðuna, sín á
hverja hellu. Vatnsskarðsmegin er skáldið sem hjarðsveinn með
hund sinn og bók. Hann ber hönd fyrir augu og horfir yfir
Skagafjörð og Drangeyjarsund. Á þá mynd er letrað:
Komstu skáld í Skagafjörð,
þegar lyng er leyst úr klaka-
laut, og yfir túnum vaka
börnin glöð við gróðurvörð!