Skinfaxi - 01.11.1953, Blaðsíða 19
SKINFAXI
115
höggvara um gerð minnisvarðans og tilhögun alla.
Tók hanri málaleitan þessari með sérstakri vinsemd.
Á vegum nefndarinnar kom Ríkarður Jónsson norður
í Skagafjörð til þess að kynnast héraðinu og staðhált-
um hér. Að þessum athugunum loknum gerði hann
tillöguteikningar að gerð minnisvarðans, og líkan eftir
þeirri teikningu, er bezt þótti.
Þegar hér var komið, lagði nefndin tillögur sínar um
framkvæmdir fyrir aðalfund Ungmennasambandsins,
sem haldinn var á Sauðárkróki 24. apríl 1948, og ákvað
sá fundur endanlega, að minnisvarðinn skyldi reistur
á Arnarstapa og byggður eftir líkani því, er Ríkarður
Jónsson hafði gert af honum. Fundurinn hvatti ung-
mennafélögin til fjáröflunar til framgangs málefni
þessu og lagði áherzlu á, að hvers konar stuðningur og
fjárframlög væru þakksamlega þegin.
Ungmennafélögin hófu nú fjáröflun á ýmsan hátt.
Nokkur þeirra lögðu fram fé úr félagssjóðum, en
önnur efndu til skemmtanahalds í sama tilgangi. Kom
brátt í ljós, að margir höfðu áhuga fyrir því að lciða
þetta mál farsællega til lykta og i örugga höfn. Þá hóf
nefndin útgáfu silfurmcrkja og hófst sala þeirra á
árinu 1951. Byggði nefndin helztu vonir sínar um fjár-
öflun á sölu þeirra, enda hafa þau gefið góða raun.
Enn munu þau verða til sölu um nokkurt skeið.
Allur undirbúningur að hyggingu minnisvarðans
hefur að sjálfsögðu tekið alllangan tima og verið marg-
þættur. Á þessum átta árum, sem liðin eru síðan minms-
varðamálinu var fyrst hreyft innan samtaka ung-
mennafélagnna, hafa margir hlutir gerzt, sem liér verða
ekki nefndir. Á þessum árum hefur Rikarður Jónsson
komið nokkrum sinnum hingað norður til þess að leita
að grjóti í varðann og taka ýmsar ákvarðanir um fram-
kvæmdir verksins, og margt annað mætti auðvitað tclja,
en verður ekki gert að sinni.
8*