Skinfaxi - 01.11.1953, Qupperneq 20
116
SKINFAXl
Framkvæmdir við byggingu minnisvarðans hófust
23. júní sl. og hefur síðan verið unnið við uppbyggingu
hans af miklum dugnaði og hagsýni, og er þessu verki
nú að fullu lokið.
Ég vil þessu næst nefna nöfn nokkurra þeirra, sem
ú einn eða annan hátt hafa unnið að lausn málsins.
Stephan G.-nefndin er nú þannig skipuð, að Eyþór
Stefánsson er enn sem fyrr formaður hennar. Hafa
störfin að sjálfsögðu mest á honum mætt. Aðrir
nefndarmenn eru þeir Óskar Magnússon og Guðjón
Ingimundarson og hafa þeir báðir átt sæti í nefndinni
í'rá upphafi. Auk þeirra eiga nú sæti í nefndinni, þeir
Hróbjartur Jónasson múrarameistari á Hamri og
Magnús Gíslason bóndi á Frostastöðum. Ólafur Sigurðs-
son bóndi á Hellulandi átti sæti 1 nefndinni um noklcurt
skeið, og Gísli bóndi Stefánsson í Mikley var einn
nefndarmanna frá því 1950 til vors 1953, er hann lézt.
Þar sein allir nefndarmenn eru og hafa verið búsettir
í héraðinu, en margháttaða þjónustu og fyrirgreiðslu
hefur þurft að inna af höndum í Reykjavík, fékk
nefndin Kára Sigurðsson forstjóra í Reykjavík sér tii
aðstoðar og samstarfs. Hefur urn margt verið til hans
leitað og jafnan leyst úr því með festu og fyrirhyggjr
Ríkarður Jónsson myndliöggvari hefur haft mestan
veg og vanda af gerð minnisvarðans og rnynda þeirra
er á honum eru. Enda hefur nefndin alla tíð haft hann
sér til ráðuneytis um ýmsa hluti, svo sem um gerð
merkja þeirra, er fyrr voru nefnd.
Hróbjartur Jónasson múrarameistari og menn hans
hafa, að fyrirsögn Ríkarðs Jónssonar, hlaðið varðann
af stakri kostgæfni og vandvirkni, svo að hvergi virðast
missmiði á. Þeir hafa haft skannnan tíma til verksins
og því unnið langa og stranga vinnudaga.
Ymsir hafa orðið til þess að veita málefni þessu fjár-
hagslegan stuðning, auk ungmennafélaganna. Má þar
fyrst nefna Aljjingi, sem veitti á síðustu fjárlögum 20