Skinfaxi - 01.11.1953, Page 21
SKINFAXI
117
þús. króna framlag til þessa verks. Ber l'yrsl og fremst
að þakka þingmönnum heraðsins þá fjárveitingu.
Einnig veitti sýslunefnd Skagafjarðarsýslu 5 þús. kr.
til minnisvarðans á síðasta aðalfundi sínum.
Vegagerð ríkisins hefur, að tilhlutan forsætisráð-
herra, góðfúslega lagt fram nokkurt fé, til Iagfæringar
á umhverfi Arnarstapans, vegna þeirrar röskunar, sem
vegagerð hér hjá stapanum liafði orsakað.
Ivvenfélag Seyluhrepps varð einna fyrst til þess að
veita þessu máli stuðning með 1000 kr. gjöf til minnis-
varðans. Er það eina félagið, auk ungmennafélaganna,
sem slíkt hefur gert.
Síðast þessara stóru framlaga vil ég nefna dánargjöf
þá, að upphæð 10 þús. krónur, sem Gísli heitinn Stefáns-
son gaf til þessa hugðarmáls síns, en hann átti sæti
í nefndinni frá því 1950 og til dauðadags. Sýndi hann
málefni þessu ætíð sérstakan velvilja og áhuga, enda
einlægur aðdáandi skáldsins.
Meðal þeirra mörgu, er greitt hafa götu ])essa máls
með merkjasölu, og á ýmsan annan liátt, er Dr. Richard
Beck prófessor. Stóðu miklar vonir til þess, að hann
gæti orðið hér meðal okkar í dag, og söknum við þess,
að svo gat eigi orðið.
öllum þeim, er hér hafa verið nefndir, og öðrum,
sem á einn eða annan hátt hafa greiit götu ])essa máls,
vil ég færa alúðarfyllstu þakkir stjórnar Ungnienna-
sambands Skagafjarðar fyrir vel og dyggilega unnin
störf. Þá ósk vil ég færa þeim, að hvert það verk, er
þeir taka sér fyrir hendur að framkvæma, megi verða
af sömu dáð og af sama dugnaði unnið.
Ég liefi í stórum dráttum rakið tildrög þess, að við
nú fjölmennum hér. Einum áfanga — einu takmarki
i starfi Ungmennasambands Skagafjarðar er náð.
Stephani G. Stephanssyni hefur verið reistur minnís-
varði á Arnarstapa. Ákveðnu verki er lokið, og við
fögnum því í dag.