Skinfaxi - 01.11.1953, Side 22
118
SKINFAXI
50 ára afmæli dönsku ungmennafélaganna
I sambandi við ársþing dönsku ungmennafélaganna
(D.D.U.), sem haldið var í Askov 17.—19. júlí í sumar,
var minnzt 50 ára afmælis þeirra. Mér veittist sú
ánægja að sækja þessa afmælishátíð sem fulltrúi U. M.
F. I. Að kvöldi þess 18. júlí kom ég til Askov, og var
eitt mitt fyrsta verk að skoða rnerka sýningu, sem opin
var í tilefni afmælisins. Sýningin veitti gotl yfirlit
yfir sögu og starfshætti D.D.U., og var því bæði fróð-
legt og skemmtilegt að litast þarna um. Að ioknurn
kvöldverði var efnt til kvöldsamkomu í hátiðasal lýð-
skólans. Formaður D.D.U., Jens Marinus Jensen, stjórn-
aði samkomunni. Um kvöldið var upplestur og hjónin
Hasseris sungu þar tvísöng.
Þarna voru mættir fulltrúar fjölmargra félaga í
Danmörku og á hinum Norðurlöndunum, sem haia
haft samstarf við D.D.U. og fluttu þeir kveðjur og
gjafir. Dönsku æskulýðssamtökin i Suður-Slésvik
sunnan þýzku landamæranna gáfu t. d. stóran danskan
fána á stöng, og var afhendingarstundin mjög áhrifa-
rík. Frá U.M.F.l. færði ég haglega gerðan fundarhamar,
útskorin og áletraðán, og fannst mér sæmd að fá að
færa svo veglega gjöf og þakka samstarfið á liðnum
árum. Sunnudagsmorguninn var gengið í kirkju og var
hún þéttsetin. Guðsþjónustunni lauk með altarisgöngu
og var allt mjög hátíðlegt.
Eftir hádegi hófust svo útihátíðahöld á fallegum og
hentugum samkomustað, Skibelund Krat. Jens Marinus
Jensen stjórnaði hátíðinni. Þarna voru fluttar ræður
(Hans Luro skólastjóri og 0regaard hiskup) og kveðjur
frá Suður-Slésvík og Norðurlöndum. Einnig gafst kosl-
ur á að lítast um á þessum merka stað undir góðri
leiðsögu Eriks Appel fyrrv. þingmanns. Leikfimisýning
var og leiksýning á útileiksviði og var þar frumsýnt