Skinfaxi - 01.11.1953, Page 32
SKINFAXI
128
1. mynd sýnir Fortune Gor-
dien, er hann í ágústmánuði
s.l. sumar kastaði 59.28 m. —
Myndin er tekin mcð Viooo
hraða og samt er hönd og
framhandleggur kastarans
„hreyfður“. Af því má sjá hinn
niikla hraða í sveiflu kastarms-
ins. Athyglisverð er reisn lík-
amans, snúningur kastfótar í
innskeifa stöðu, og hversu
vinstri fótur er beinn.
2. mynd sýnir glögglega við-
skilnað kringlunnar við hönd-
ina, kastfótur hefur lokið
spyrnunum og er að lyftast
til viðnáms. Athyglisvert, að
kastarinn hefur lyfzt á tær
vinstri fótar um leið og við-
skilnaður við kringluna var
framkvæmdur, og hversu hann
teygir kastarminn sem lengst
til hliðar, til þess að fá sveiflu-
arminn sem lengstan.
Kúluvarpið: Á Ólympíuleikunum 1952 komu tveir kúluvarp-
arar frá Bandar. N.-Ameríku fram á sviðið með nýtt kastlag
— nýja vöðvabeitingu — t. d. sigurvegarinn O’Brien (kastaði
17.49 m). Hann er maður um tvítugt og af kastara að vera
ekkert áberandi að líkamsburðum. Hann tekur sér stöðu aftast
í hringnum, snýr tám kastfótar í þveröfuga átt við kaststefnu
(áður var fætinum stigið þvert á kaststefnuna) og liorfir
undan kaststefnu og snýr því algjörlega baki við kastplankan-
um. Þá beygir hann hné kastfótar og bognar um mjaðmir um
leið, svo að hann hallast mjög fram yfir linéð. Vinstri fótur