Skinfaxi - 01.11.1953, Síða 35
SKINFAXI
131
Starfsíþróttir:
IMautgripadómar
I. Inngangur.
Það er alkunna, að margir menn stunda landbúnaðarstörf
og skepnuhirðingu, sem þekkja ekki skepnur þær hverja frá
annarri, sem þeir umgangast. Þessir menn hafa varla mikla
ánægju af skepnum, því að þeir sjá þær ekki fyrir sér sem ein-
staklinga og fá aldrei tækifæri til þess að kynnast persónu-
leika þeirra. Allt öðru máli er að gegna með þá, sem glöggir
eru og þekkja alla einstaklinga hjarðarinnar. Þeim er það
mörgum ótæmandi yndisuppspretta að fylgjast með háttum og
lífsferli hverrar skepnu, sem þeir hafa undir höndum.
En þá fyrst hafa menn fyllsta yndi af skepnum sínum, þegar
þeir gjörþekkja kosti þeirra og galla og geta vegið þá svo og
metið, að þeir geti gert sér grein fyrir því, hvað gripurinn er
kostamikill í hlutfalli við aðra einstaklinga lijarðarinnar.
Það er varla um það að ræða, að menn séu fæddir með þá
eiginleika að kunna full skil á þvi að meta búfé. Þá eiginleika
þarf að þjálfa til þess, að matið verði nokkurs virði. Á hinn
bóginn þykir mér rétt að benda á, að með góðri þjálfun virð-
ast flestir geta náð nokkurri hæfni í að dæma um búfé.
Með því að gera nautgripadóma að keppnisgrein í starfs-
íþróttum er unnið að því að þjálfa þessa eiginleika, og það
mun veita þeim, sem þátt taka i slikri lceppni, aukna ánægju
við gripahirðingu og verða þeim að liði i ræktun búfjárins.
II. Tilhögun keppninnar.
1. Áður en keppnin hefst, skulu tveir æfðir dómarar velja
kýrnar, sem nota skal til dómkeppninnar. Við val þeirra er
rétt að hafa hugfast, að þær hafi góða skapgerð, standi rólegar,
þótt þær séu skoðaðar af ókunnugum. Enn fremur er rétt að
hafa kýrnar með sem ólíkasta eiginleika, svo að fram komi
sem mest af kostum og göllum og helzt i hverri kú.
Dómarar skulu dæma hvern grip hvor í sínu lagi og sam-
ræma síðan dóma sína á eitt dómspjald, og verður það dóm-
spjald síðan liaft til samanburðar við dómspjöld þátttakenda
í keppninni, þegar reiknaðar verða einkunnir þeirra.
2. Hver þátttakandi í dómkeppni skal dæma minnst tvær
kýr. Honum skal sett tímatakmörk þannig, að hann hafi skilað
9*