Skinfaxi - 01.11.1953, Síða 44
140
SKINFAXI
og forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, er kom þar við á
ferð sinni um Vestfirði um þetta leyti.
Ú r s 1 i t:
100 m hlaup: Jónas Ólafsson, Höfrungi, 11,7 sek. Ilann vann
einnig 400 m hlaupið, 62,03 sek.
1500 m hlaup: Guðbjartur Guðlaugsson, Umf. 17. júni, 4:44,1
mín. Hann vann einnig langstökkið, 5,99 m, þrístökkið, 12,63
m og fimmtarþrautina með 2339 stigum.
Hástökk: Jón Hjartar, Gretti, 1,60 m. Hann vann einnig spjót-
kastið, 47,08 m.
Stangarstökk: Andrés Bjarnason, Stefni, 2,70 m.
Kringlukast: Jens Kristjánsson, Umf. Bifröst, 38,91 m.
Kúluvarp: Eyjólfur Bjarnason, Stefni, 12,65 m.
Starfshlaup: Hjörtur Jónsson, Gretti, 11,26 mín.
4X100 m. boðhlaup: Höfrungur, 53,8 sek.
Kvennagreinar.
80 m hlaup: Ágústa Ágústsdóttir, Höfrungi, 12,4 sek. Hún
vann einnig langstökkið, 4,01 m og hástökkið, 1,20 m.
Kringlukast: María Ólafsdóttir, Ilöfrungi, 23,34 m. Hún
vann einnig kúluvarpið, 8,57 m.
Höfrungur á Þingeyri vann mótið með 118 stigum. Vann
félagið verðlaunabikar til fullrar eignar, þar sem þetta er
í þriðja skipti í röð sem það vinnur bikarinn.
Af einstaklingum hlutu flest stig: Guðbjartur Guðlaugsson,
Umf. 17. júni, 41 stig og Ágústa Ágústsdóttir, Höfrungi, 27
stig. Veður var heldur kalt og óhagstætt meðan keppnin fór
fram en bliðkaðist með kvöldinu.
HÉRAÐSMÓT HÉRAÐSSAMBANDS STRANDAMANNA
var haldið í Hólmavík 12. júlí. Veður var ágætt en vegna
rigningar undanfarna daga var völlurinn blautur.
Ú r s 1 i t:
100 m hlaup: Guðmundur Valdimarsson, Umf. Geislinn, 11,1
sek. Hann vann einnig þrístökkið, 13,89 m og hástökkið, 1,62 m.
Kúluvarp: Sigurkarl Magnússon, Umf. Reynir, 12,74 m. Hann
vann einnig spjótkastið, 50,40 m og kringlukastið, 38,45 m og
langstökkið, 6,40 m.
3000 m hlaup: Stefán Daníelsson, Umf. Hvöt, 9:58,2 min.
Umf. Geislinn, Hólmavík, vann mótið með 41 stigi. Önnur
Umf. fengu þessi stig: Umf. Reynir, Hrófbergshreppi, 21, Umf.
Ilvöt, Kirkjubólsbreppi, 7 og Umf. Gróður, Fellslireppi 2. Af
einstaklingum hlutu flest stig Guðmundur' Valdimarsson og
Sigurkarl Magnússon, 21 hvor.