Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.11.1953, Síða 60

Skinfaxi - 01.11.1953, Síða 60
156 SKINFAXI þetta hefti verði þau var við það. Skinfaxi fæst að mestu síð- an 1925. Ungmennafélagar. Herðið sóknina fyrir Skinfaxa. Fáið unga fólkið, sem er að .ganga í félögin til að gerast áskrifendur. Sendið afgreiðslunni jafnóðum nöfn þeirra. Takmarkið er: Fleiri áskrifendur. Stærra og fjölbreyttara tímarit. Þrjú hefti koma út árlega og árgang- urinn kostar kr. 15,00. Gjalddagi er 1. okt. U.M.F.f. gefur fundarhamar. Ingólfur Guðmundsson frá Laugarvatni færði dönsku ung- mennafélögunum fundarhamar að gjöf frá U.M.F.Í. á 50 ára afmælishátíð þeirra í Askov 17.—19. júli í sumar. Hamarinn er skorinn í islenzkt birki af Sveini Ólafssyni myndskera. Hann er hinn veglegasti gripur og eru í hann skornar hamingjuóskir og kveðjur íslenzkra ungmennafélaga til þeirra dönsku. For- maður dönsku ungmennafélaganna liefur þakkað gjöfina með sérstöku bréfi lil U.M.F.Í. Hlín, ársrit íslenzkra kvenna, 35. árg., liefur borizt Skinfaxa. Ritið er 10 arkir að stærð 'og efnið mjög fjölbreytt, fréttir af starfsemi kvenfélaganna, leiðbeiningar um heimilisiðnað og marga aðra liagnýta hluti. Minningargreinar um ýmsar merkiskonur. Greinar um upp- eldis— og fræðslumál, heilbrigðismál. Þá eru í hcftinu kvæði og andleg Ijóð. Halldóra Bjarnadóttir er útgefandi og ritsljóri og hefur svo verið um langan tíma. Hefur hún gegnt þar þýðingarmiklu hlutverki af frábærum dugnaði. í liaust átti hún 80 ára af- mæli og var þá sýndur margvíslegur sómi. D. Á. Útgefandi: Sambandsstjórn Ungmennafélaga íslands. Pósthólf 406 — Reykjavík. Afgreiðsla: Edduhúsinu, Reykjavík, efstu hæð. Ritstjóri: Stefán Júlíusson, Brekkugötu 22, Hafnarfirði. FÉLAGSPRENTBMIÐJAN H.F.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.