Skinfaxi - 01.04.1954, Qupperneq 7
SKINFAXI
7
hengiflug upp úr firðinum. Þessi leið er hrikaleg en um
leið fögur og hrífandi. Gleymir henni enginn, sem séð
hefur, og má um liana segja, að sjón er sögu ríkari.
Daginn eftir fórum við yfir í Valdresdalinn og skoö-
uðum ýmsa merka staði, m.a. stafakirkju. Um kvöldjð
skoðuðum við byggðasafnið á Litlahamri, sem víðfrægt
er, og þótti okkur mikið til þess koma. Var sérstaklega
gaman að kynnast þarna gömlum liúsum og bæjum.
Ekki var síður eftirminnilegt að sjá hin fornfálegu
áhöld og tæki, öll á sínum stað. Einna mesta aíhygli
mína vöktu gömul lækningatæki, t. d. kylfan, sem notuð
var til að deyfa með, o. fl. — Næstu nótt gistum við í
litlum gististað um 14 km frá Litlahamri.
Þriðji dagurinn hófst með heimsókn að Aulestad, sem
varbústaðurBjörnstjerneBjörnsson, eins og kunnugter.
Er þar allt með kyrrum kjörum frá því Björnson-hjonin
bjuggu þar. Sonardóttir skáldsins tók á móti okkur.
Þegar hún frétti, að okkar væri von, lét hún draga is-
lenzka fánann að hún á hinni miklu fánastöng. Hún
Langferðabíllinn hjá Aulestod.