Skinfaxi - 01.04.1954, Blaðsíða 43
SKINFAXI
43
bilið milli fótanna um lágklaufir á framfótum. Á afturfótum á
bilið milli hækla og milli fóta um lágklaufir að vera jafnt.
Liðbönd á kjúkum þurfa að vera sterk, svo að kindin gangi
ekki á lágklaufunum. Það er hæfilegur halli á kjúkunum, að
þær myndi sem næst 45° horn við jörðina, þeg)ar kindin
stendur eðlilega. Fæturnir mega ekki vera snúnir, hvorki í
kjúkum né um hné eða liækla.
9. Ull: Magn og litur. Ullin á að vera sem mest. Ullarmagn-
ið finnst bezt með því að taka ofan í ullina og finna hve vel
hún fyllir greipina. Ullin á að vera vel livít. Rétt er að fella
mislitar kindur einlitar, hrein mórauðar, hrein svartar og
gráar um I stig, vegna litar, en hélusvartar og illa mórauðar
og tvílitar um 2 til 4 stig eftir litarhætti kindarinnar. Hrein-
höttóttar eða hrein flekkóttar kindur, þegar liægt er að að-
greina meiri hluta reifisins i lireinlita ull, er rétt að fella um
2 stig fyrir lit, en golsóttar, grámórauðar og grautflekkóttar
kindur skal fella um 3 til 4 stig, eftir því, hve mikið ullin er
blönduð dökkum liárum. Séu dökk liár hér og livar um hvítu
ullina á golsóttu, bíldóttu eða flekkóttu fé skal liiklaust draga
4 stig frá, vegna litar. Þótt kindin sé bíldótt, ef ekkert finnst af
dökkum hárum í ullinni skal ekki fella hana, vegna litar.
Finnist gul hár í ullinni skal fella kindina um 1—4 stig þess
vegna eftir því, hve mikil brögð eru að rauðgulu hárunum.
Finnist þau aðeins lítið eitt í linakka þá að fella um 1 stig,
en sé ullin öll meira og minna rauðmenguð þá um 4 stig.
10. Ull: Fínleiki o. fl. Ullin á að vera þétt, þelið mikið, frem-
ur langt og finliðað inn að skinni, hörundið á að vera rauð-
leitt og ullin þvöl af sauðfitu. Togið á að vera stutt og gorm-
hrokkið og fremur fint. Það á að vera sem mýkst viðkomu,
ekki snarpt milli fingranna, þegar þreifað er á því. Togið á
ekki að vera langt og slikjulegt. Sem minnstur munur á að
vera milli grófleilca ullarinnar um bóga og í lærum. Engin
illhæra, þ. e. dauð, hvít, loftfyllt hár, stökk í sér eiga að finn-
ast í ullinni. Ullin má ekki vera klofin eftir lirygg eða mjög
opin inn að skinninu, það ber vott um gisið þel og veika ull.
Halldór Pálsson.