Skinfaxi - 01.04.1954, Qupperneq 24
24
SKINFAXI
Af erlendum veftvangi VII
BRÉF INDVERJANS
Fyrir tveim eða þrem árum barst mér í hendur lítil ensk
bók, sem nefnist Bréf frá indverskum dómara til enskrar hefð-
arkonu. Mér þótti bókin merkileg fyrir margra hluta sakir.
Bréf þessi eru skrifuð án þess að höfundi kæmi til hugar, að
þau yrðu nokkru sinni birt. Þess vegna eru þau hispurslaus
í öllu látleysi sínu, og raunar beinskeytt um mörg efni, þótt
alls staðar séu þau hefluð í frásögn og framsetningu. Þau lýsa
menntuðum manni og siðfáguðum. En merkust eru þau fyrir
lýsingar höfundar á háttum og siðvenjum Austurlandabúa, og
þá sérstaklega Indverja. Athuganir hans á nýlenduvandamál-
um og kynþáttavandkvæðum eru vel grundaðar og fordóma-
lausar. Bréfin eru auk þess hin merkilegasta saga. Og þótt
bréfin séu skrifuð fyrir 20—30 árum, eru þau í fullu gildi enn.
Mig hefur lengi langað til að birta í Skinfaxa nokkur sýnis-
horn úr þessum bréfum. Læt ég nú af því verða.
R i t s t j.
I.
Þér verðið að afsaka þetta bréf frá manni, sem þér hafið
ef til vill gleymt þegar á þessum morgni. Það er ungi, ein-
manalegi maðurinn frammi við dyrnar, sem þér voruð svo
verður liver einstaklingur að gera og þjóðin 611 sem
einn maður. Við verðum að meta frelsi og sjálfstæði
ættjarðar okkar meira en svo, að til mála komi að
fórna því fyrir erlenda fjármuni, óhóflega meðferð
tækni eða fánýtt glingur.
(Grein þessi barst Skinfaxa frá Héraðssambandi Suður-
Þingeyinga ásamt meira efni, þegar þetta hefti var i prentun.
Þar sem rúm var fyrir greinina í heftinu, birtist liún hér sem
framlag H. S. Þ. til Skinfaxa. Síðar verður meira efni birt frá
sambandinu. — Ritstj.).