Skinfaxi - 01.04.1954, Síða 36
36
SKINFAXI
hefur aukizt mjög mikið frá þvi sem var, og á aukin sígarettu-
neyzla meginþáttinn í þeirri aukningu.
Þið, sem eruð ung, verðið að vita, að hver sem byrjar á
að reykja, verður að gera ráð fyrir, að hann grafi undan
heilsu sinni með því. Þegar stúlkurnar, sem reykja, fara að
ganga með börn sin, líður blóðrás legsins við það, og fóstrið
getur orðið fyrir eitrun, sem verkar skaðlega á andlegt og
líkamlegt atgervi þess.
Það er ekki einungis, að konan skemmi sínar eigin æðar,
heldur spillir hún næstu kynslóð, svo að barnið hennar, sem
hún vildi gera allt fyrir, getur orðið verr úr garði gert en
skyldi, þróttminna og verr undir vos lífsins búið!
Unglingarnir, jafnt piltar sem stúlkur, verða að gera sér
ljóst, að frá sjónarmiði heilsunnar mælir allt á móti tóbaks-
nautn, en ekkert með henni. Tóbakið gerir engum manni
gagn, en mörgum illt, sem neyta þess að nokkru ráði. Hjá
sumum spillir það heilsunni tiltölulega fljótt, en aðrir þrauka
lengur. Enginn getur þó sagt um það fyrirfram, live viðkvæm-
ur hann er fyrir tóbakinu.
Tóbakið er dýrt. Það er þungur skattur, sein menn mundu
risa öndverðir gegn, ef hann væri á þá lagður. En af fúsum
vilja leggja menn þennan skatt á sig, ekki aðeins á pyngju
sína, þar sem hann hvílir með miklum þunga, heldur einnig
á heilsu sína, þar sem hann hvílir enn þyngra og veldur ómæl-
anlegu tjóni.
Það verður aldrei um of brýnt fyrir unglingunum, piltum
og stúlkum, að hver sem vill varðveita dýrmætustu eignir
sínar, heilsu, fegurð og starfsorku, þarf að líta á tóbak eins
og eitur og forðast það eins og eitur.
Ekkert er hægara en að byrja aldrei að reykja.
Fátt er erfiðara en að hætta að reykja, þegar menn liafa
vanið sig á það.
Byrjið því aldrei á þvi.
(Prentað eftir bæklingi S.B.S.).