Skinfaxi - 01.07.1959, Page 12
76
SKINFAXI
langar og ýtai’legar, einkum um félags-
heimilamáliö og slarfsfræðslu og starfs-
íþróttir, en þess gætti ekki, sem oft vill
brenna við á fjölmennum þingum, að
menn töluðu að lítt hugsuðu máli eða sak-
ir smámunalegs áhuga á aukaatriðum eða
vegna þröngra sérsjónarmiða einstakra
samtakaheilda eða héraða, og virtist rit-
stjóra allur andi og starf þingsins spá
góðu um framtið Ungmennafélags íslands
og störf einstakra félaga, liéraðssamtaka
og lieildarinnar.
Gestir þingsins lögðu fram mikilvægan
skerf með þátttöku sinni, og kom greini-
lega fram i ræðunx þeirra og störfum
skilningur á mikilvægi þess, að U.M.F.I.
efldist og styrktist og fexxgi sem hezta að-
stöðu til viðtækra og varanlegra áhrifa
með þjóðinni.
I sambandsstjórn U.M.F.Í. næsta kjör-
tímabil voru kjörnir:
Sr. Eiríkur J. Eiríksson, sambands-
stjóri, Skúli Þorsteinsson, varasambands-
stjóri, Jón Ólafsson, ritari, Ármann Pét-
ursson, gjaldkei'i, Stefán Ólafur Jónsson,
meðstjóinandi. Varamenn: Lárus Hall-
dórsson og Gestur Guðmundsson. Gísli
Andrésson haðst undan endurkosningu,
og voru honum þökkuð góð störf.
Starfsmenn U.M.F.I. eru nú: Skúli Þor-
steinsson, framkvæmdastjóx'i, Stefán Ól-
afur Jónsson, leiðbeinandi í starfsíþrótt-
um, og Guðmundur G. Hagalín rith., rit-
stjóri Skinfaxa.
Þessar voru lielztu samþykktir jxings-
ins:
F élagsheimilainálið.
Þingið fagnar hyggingu hinna mörgu og
glæsilegu félagsheimila og treystir því,
að þau efli menningarlíf þjóðarinnar og
félagsstöi’f. í því sambandi bendir þing-
ið á eftirfarandi atriði:
Að stjórn U.M.F.I. leiti samstarfs við
landssanxbönd þeii-ra félaga, sem eru eig-
endur félagsheimila, um stofnun sam-
vinnunefndar til þess að veita fyrir-
greiðslu þeim til lianda, svo að þeim
vei'ði auðveldara að annast fjölbreytta
menningarstarfsemi í félagslieimilunum.
Að ungmennafélögin beiti sér fyrir því,
þar sem þau eru þátltakendur í rekstri
félagsheimilanna, að umgengni i þeim sé
góð og viðhaldi á þeim og umliverfi
þeirra sé sómi sýndur, svo þau veiði allt-
af glæsilegt og ánægjulegt athvarf fvrir
félagslegl menningarlíf fólksins.
Að eigndur félagsheimilanna láti ekki
fjáröflun til byggingar þeirra og i-eksturs
eða annai'ra framkvæmda og stai'fsemi
fara fram með þeim hætli, að félagsheim-
ilin híði álitslinekki af stai'frækslu, senx
ekki er i samræmi við menningarlegt
hlutverk þeirra.
Þingið beinir þeirri áskorun til Aljxing-
is, að aukinn verði hlutur félagslieinxila-
sjóðs með tilliti til fjölgunar þeirra fé-
laga, sem rétt hafa til styrkja úr sjóðn-
um. Einnig óskar þingið eftir því, að
menningarstarfsemi félagsheimilanna
verði látin njóta einhvers stuðnings á
fjárhagsáætlunum lil nxennta- og kirkju-
nxála vegna lxlutdeildar i uppeldis- og
menningarlífi þjóðarinnar.
Þingið skorar á félagsheimilastjórn að
undii'búa og leggja fyrir Alþingi endur-
skoðun á félagsheimilalögunum, er feli í
sér, að félagsheimilabyggingar og fjár-
veilingar til þeix-ra séu byggðar á áætlun
unx þörf félagsstarfseminnar í liverju
hvggðai'Iagi, en ekki einvöi’ðungu óskum