Skinfaxi - 01.07.1959, Page 18
82
SKINFAXI
Niðri á íþróttavangi.
Jónsson, skólastjóri á Þingeyri, Jón
Hjartar, íþróttakennari á Flateyri, og
Halldór Kristjánsson, bóndi á Kirkjubóli
í Bjarnardal í Önundarfirði.
Námskeið þetta þótti takast með ágæt-
um, varð öllum til ánægju, sem að því
stóðu eða eitthvað höfðu af því að segja.
Er slík starfsemi héraðssambanda mjög
æskileg, kemur þátttakendum að góðu
gagni, tengir unga fólkið samtökunum og
vekur skilning þess eldra á gagnsemi
þeirra.
Hér fer á eftir bréf, sem Skinfaxi hefur
fengið frá einum þeirra unglinga, sem
námskeiðsins nutu, Ellert Ólafssyni á
Suðureyri i Súgandafirði. Hann er fjórt-
án ára gamall:
„Þegar ég frétti, að eftir eina viku ætti
að vera íþróttanámskeið að Núpi, þá vildi
ég strax óður og uppvægur fara. Kostnað-
urinn álti að vera 400.00 kr. og íþróttafé-
lagið lieima ætlaði að greiða ferðirnar.
Þvi var strax slegið föstu að ég færi, og
bjó ég mig því út ineð nesti og nýja skó.
Það var þvi langþráð stund þegar lagt var
af stað frá Suðureyri. Ég varð fyrir nokkr-
um vonbrigðum, þegar ég kom á áfanga-
stað, því flestir á námskeiðinu voru Súg-
firðingar, en það lagaðist, og eftir tvo
daga var ég farinn að kunna vel við mig
og kynnast nýjum félögum.
Fyrstu nóttina gat ég sama og ekkert
sofið vegna spennings en það kom ekki
að sök vegna þess að æfingarnar voru
ekki mjög erfiðar. Eftir liádegið áttu all-
ir að fara að sofa, en það fannst mér mjög
skrýtið, og ekki gat ég sofnað. En nóttina
eftir gat ég sofið og lika eftir hádegið.
Leikfimikennarinn okkar bafði sagt að
við þyrftum þennan svefn, og sagði hann
að við myndum líka geta sofnað eftir há-
degið. Þar var liann vissulega sannspár,
því eftirleiðis gátu allir sofið eftir há-
degið.
Allir fóru á fætur á morgnana kl. 8.
Byrjaði dagskráin með frjálsum íþrótt-
um og leikfimi fram að 12. Eftir hádegið
var svefn og kl. 2 byrjuðu aftur iþróttir og
liéldu áfram til kl. hálf fjögur. Þá var
drukkið og svo var frí til kl. 5. Eftir
kvöldmatinn dvöldu flestir i dagstofunni
og var þar teflt, sjiilað og leikinn tennis,
og fleira. Kl. 9 hófst kvöldvakan. Þá voru
sýndar kvikmyndir, stiginn dans, sungið
og margt fleira. 1 dansinum er ég enginn
snillingur, því að ég á ekki að sýna dans
á héraðsmótinu, en ég liugga mig við það,
að ég fæ kannski að sýna leikfimi.
Kennaralið skólans skipuðu þeir Sigurð-
ur R. Guðmundsson og Valdimar Örnólfs-
son, og kom öllum saman um að betri
kennara væri ekki liægt að fá. Þetta liefur