Skinfaxi - 01.07.1959, Qupperneq 20
84
SKINFAXI
Lngmennasamband Dalamanna
fertugt
30. nóvember s.l. minntist Ungmenna-
samband Dalamanna 40 ára afmælis síns
með samkvæmi, sem iialdið var að Laug-
um í Hvammssveit. Var þar saman komið
margt manna, ýmsir eldri og yngri með-
limir sambandsins.
Kaffidrykkja fór fram í hinu nýja
barnaskólahúsi að Laugum. Borð voru
prýðilega búin og veitingar ágætar; sáu
um það kvenfélagskonur Hvammssveit-
ar. Friðjón Þórðarson, sýslumaður,
stjórnaði hófinu. Halldór Þorgils Þórðar-
son, form. sambandsins, ávarpaði gesti
og bauð þá velkomna. Aðalræðuna hélt
Geir Sigurðsson, bóndi á Skerðingsstöð-
um. Lýsti hann tildrögum að stofnun
samhandsins og enn fremur störfum þess
á gengnum árum. Þá lalaði frú Steinunn
Þorgilsdóttir á Breiðabólsstað. Minntist
hún þeirra hollu áhrifa, sem ungmenna-
félagshreyfingin liefði haft á hinn ís-
lenzka æskulýð og lýsti undirbúningi og
atvikum í samhandi við stofnun U.M.S. D.
Var hún ein viðstödd af þeim, er sátu
stofnfund sambandsins 24. maí 1918.
Þá talaði Einar Kristjánsson, skóla-
sljóri á Laugum, og fleiri tóku til máls.
Að lokum tiétt sýslumaður ræðu, um
leið og liann óskaði sambandinu heilla,
Minnti liann á það, að á komandi degi
væri einnig annað 40 ára afmæli, en það
væri fullveldi Islands, sem þá væri 40
ára. Óskaði liann landi og þjóð heilla og
blessunar, og allir viðsladdir tóku undir
það með ferföklu húrrahrópi.
Fyi’sti formaður sambandsins og braut-
ryðjandi i starfi, Sigmundur Þorgilsson,
kennari Ásólfsskála, var 65 ára þennan
dag; sendi sambandið honum heilla- og
þakkarskeyti.
Afmælisskeyti hárust sambandinu frá
fyrrv. formanni Iialldóri E. Sigurðssyni
alþingism., Ásgeiri Bjarnasvni alþm. o. fl.
Að endingu skemmti fólk sér við söng
og dans fram á nótt. — Var þetta lióf hið
ánægjulegasta og skildi eftir góðar minn-
/ngar.
Núverandi stjórn Ungmennasambands
Dalamanna skipa: Halldór Þorgils Þórð-
arson, formaður; Benedikt Gíslason, rit-
ari; Sigurður Þórólfsson, gjaldkeri.
N. N.
Frá skrifstofu (J.M.F.Í.
Ferðir framkvæmdastjóra.
1. Héraðssambönd á Norðurlandi
sótt heim.
Síðari liluta júlímánaðar boðaði ég til
funda með forystumönnum ungmenna-
félaga á Norðurlandi. Til fundanna voru
kallaðar stjórnir héraðssamhandanna og
sambandsfélaganna.
Héraðssamband Suður-Þingeyinga.
Laugardaginn 18. júlí fór ég landleiðis til
Lauga. Daginn eftir flutti ég erindi á
íþróttamóti þar. Veður var fagurt, og fór
mótið fram með mesta myndarhrag. Þess
mun nánar getið i Skinfaxa. Þriðjudag-
inn 21. júlí liélt ég fund að Laugum. Þar
mættu 20 fulltrúar frá 10 félögum af 11.
Mikill þurrkur var þennan dag og fólk í
önnum, en fundarmenn mættu að loknu