Skinfaxi - 01.04.1960, Page 10
42
SKINFAXI
Brynleifur Tobíasson, fyrsti formaður sam
bandsins.
fyrstnefndu og Ungmennafélagið Fram í
Seyluhreppi tóku þátt í stofnun sambands-
ins.
Auk fundahalda heitti samhandið sér
fyrir árlegum sumarmótum, fékk menn
til að fara um samhandssvæðið og halda
fræðandi fyrirlestra og efldi álmga á í-
þróttum, meðal annars knattspyrnu og
skautahlaupi. Þá stofnaði það slysatrygg-
ingarsjóð árið 1914, og skyldu þeir styrkt-
ir úr honum, sem yrðu fyrir slysum í
iþróttakeppni á sumarmótum sambands-
ins.
Þá átti sambandið drýgstan þátt i þvi
að hjóða Stephani G. Stephanssyni norður
til Skagafjarðar, og lögðu forgöngumenn
þess mikið lcapp á að gera honum dvölina
þar sem ánægjulegasta, til dæmis með för
í Drangey.
Þeir Sigurður Ólafsson á Kárastöðum
og Guðjón Ingimundarson lýsa síðan starfi
sambandsins á árunum 1924—1960. Hef-
ur forganga þess um íþróttamál verið
áhrifaríkust og umfangsmest, enda hefur
árangurinn verið mjög góður, því að í-
þróttaáhugi er mjög almennur i héraðinu.
Þar liefurverið iðkuð knattspyrna af miklu
kappi, sund, frjálsar íþróttir og hand-
knattleikur, haldin árleg héraðsmót og
háðar keppnir við önnur héraðasambönd,
skagfirzkir íþróttamenn keppt viða utan
héraðsins, allt frá Siglufirði til Yestmanna-
eyja, tekinn þáttur í landsmótum U.M.F.f.,
meistaramótum fslands og Norðurlanda-
meistaramótum, náð góðum árangri og
stundum borinn sigur úr býturn í einstök-
um greinum. Efldist mjög öll þessi starf-
semi eftir samþykkt liinna nýju íþrótta-
laga — og þá undir forustu hins sérlega
duglega, lægna og áliugasama formanns
og íþróttakennara, Guðjóns Ingimundar-
sonar frá Svanslióli á Ströndum. Af öðr-
um málum má nefna örnefnasöfnun í
Sigurður Ólafsson á Kárastöðum.
héraðinu, taka skagfirzkrar kvikmyndar,
efling skáklistar, forgöngu um að Step-
liani G. Steplianssyni væri reistur minnis-