Skinfaxi - 01.04.1960, Blaðsíða 28
60
SKINFAXI
finnsson skila hver sínu smáhlutverki skemmti-
lega, og sama er að segja um Arndísi Björns-
dóttur og Emilíu Jónasdóttur.
Brynja Benediktsdóttir, sem fólk þekkir úr
leikritinu „Kringum jörðina á áttatíu dögum",
lék þarna lítið hlutverk, en gerði það svo
skemmtilega, að ástæða er til að vonast eftir
góðum leik af henni, þegar fram líða stundir.
Þýðing Karls Guðmundssonar virðist vera
eðlileg. Ég veitti aðeins einni villu athygli.
Christian name heitir skírnarnafn á íslenzku,
en ekki fornafn. Það er engin ástæða til að
nota dönsk nöfn í íslenzkum þýðingum, þar
sem góð íslenzk orð eru til.
Ætla má, að þessi sýning verði vel sótt, svo
vel er frá henni gengið og svo auðskilin er hún.
Leikritið mundi hæfa leikfélögum og leik-
urum viðar um land en í Reykjavík.
Ólafur Gunnrasson.
★
Slyngtir
söiumaður
Ungur maður, sem gjarnan vildi verða
kaupmaður, en skorti fé, kej'pti ýmislegt
í búðum, einkanlega eitthvað sérlega muni,
og gekk svo i hús í úthverfum Reykjavík-
ur og seldi frúnum vöru sína. Einu sinni
komst liann yfir laglegt gaukúr, það er
að segja úr, sem var þannig gert, að þeg-
ar það sló, opnaðist lítill lileri efst á því,
og í ijós kom galandi gaukur. Mannin-
um gekk illa að selja úrið, en loks hitti
hann unga, málaða og fína frú, sem leizt
vel á þetta útskorna furðuverk, enda átti
hún fyrir margt sérlegra muna, og frúin
náði í snatri í veskið sitt og horgaði eins
og upp var sett. Þegar hún var að Ijúka
því, sló klukkan — og gaukurinn kom í
ljós og gól. Frúin sló saman höndunum
og sagði:
„En gaman! Maður gæti haldið, að fugl-
inn væri hara lifandi, — en sniðugt, en
smart, agalega hreint smart!“
Hann liafði fleira meðferðis, sölumað-
urinn, en úrið. Hann leit einarðlega í aug-
un á frúnni og sagði:
„Hann er líka lifandi; það er ekki sízt
það, sem gerir, livað mér gengur vel að
selja þessi úr, því fólk er svo hneigt fyrir
fugla, og þarna þarf ekki sérstakt búr.
Og nú vildi ég leyfa mér að taka af frúnni
ómak. Ég er hérna með í vasanum nokk-
ur hréf af fuglafræi.“
„En livað þér eruð hugulsamur!“ sagði
frúin. „Hvað ætti ég að kaupa mörg?“
„1 hili ættu tiu að duga.“
Og frúin var fljót að grípa veskið sitt
og borga, og sölumaðurinn jafnfljótur að
þakka, kveðja og liypja sig, því að hann
heyrði símann hringja; var trúlega ein-
liver vinkona, og henni þurfti auðvitað
að segja frá því, sem gerzt liafði.
UNGMENNAFÉLAG ISLANDS
Stofnað 1907 — P.O. Box 406, R.vík.
Sambandsstjórn:
Sr. Eiríkur J. Eiríksson, sambandsstjóri
Skúli Þorsteinsson, varasambandsstjóri
Ármann Pétursson, gjaldkeri
Jón Ólafsson, ritari
Stefán Ól. Jónsson, meðstjórnandi.
Framkvæmdastjóri:
Skúli Þorsteinsson, Reykjavík.
Skrifstofusimi U.M.F.l. 12546.
Árgjald til U.M.F.l. kr. 5.00.
Skinfaxi, tímarit U.M.F.Í.:
Ritstjóri Guðm. Gíslason Hagalin.
Áskriftargjald kr. 30.00 árg.