Skinfaxi - 01.04.1960, Side 18
50
SKINFAXI
þingfulltrúa og óskuðu sambandinu
heilla.
Siðan voru rædd mörg mál, sem varða
starfsemi sambandsins, til dæmis íþrótta-
mál, slysatrygging íþróttamanna og fjár-
mál. Kom það bæði fram í skýrslu for-
manns og umræðum á þinginu, að eðli-
lega framhaldsþróun á vettvangi iþrótt-
anna heftir einkum vöntun iþróttakenn-
ara.
Af málum, sem ekki varða beinlínis
starfsemi sambandsins, var landlielgis-
málið bið eina, sem tekið var til um-
ræðu, og var samþykkt eftirfarandi álykt-
un:
„Héraðsþing U.M.S.S. treystir því, að
íslenzk stjórnarvöld haidi fast á málstað
þjóðarinnar í landlielgismálinu og geri
enga samninga i því máli, sem talcmarki
rétt þjóðarinnar til 12 milnanna og frek-
ari útfærslu landhelginnar.“
Stjórnin var öll endurkosin, nema Iíall-
dór Benediktsson á Fjalli, en bann baðst
undan endurkosningu, eftir þrettán ára
ágætt starf, og flutti formaðurinn honum
þakkir. Stjórnina skipa:
Guðjón Ingimundarson, Gísli Felixson,
Eggert Olafsson og Stefán Guðmundsson,
allir til heimllis á Sauðárkróki, og loks
Sigurður Jónsson á Reynistað.
Fimmtíu ára afmælisins var minnzt með
fjölmennu liófi. Þar voru fluttar margar
ræður, og voru kjörnir fimm heiðursfé-
lagar: þeir Jón Sigurðsson á Reynistað,
Árni Hafstað í Vík, Þórarinn Sigurðsson,
sem nú er á Hvanneyri, Ólafur Sigurðs-
son á Hellulandi og Sigurður Ólafsson á
Kárastöðum.
Þá voru sýndir þættir úr Íslandsklulck-
unni, og.fjögurra manna hópur söng.
Svo las Halldór Benediktsson kvæði.
Loks voru afhentar góðar gjafir frá
ýmsum aðiljum, og einnig bárust mörg
Iieillaskeyti.
Rikti mjög ánægjulegur andi í hófinu,
og að því loknu skemmtu menn sér við
dans.
Arsþing llngmennasambands
Borgarf jarðar
Það var haldið í Reykholti 30. apríl til
1. maí. Ragnar Olgeirsson sambandsstjóri
setti þingið, og síðan var Þorsteinn Þor-
steinsson kosinn forseti þess.
Mættir voru 32 fulltrúar frá tólf félög-
um, en tvö félög, Borg í Borgarhreppi
og Hliðin í Þverárhlið, sendu enga fulltrúa.
Engar umræður urðu um skýrslur stjórn-
arinnar, en tekin voru fyrir mörg mál,
margar tillögur samþykktar og kosnar
ýmsar nefndir, sem liafa skulu á liendi
ákveðin verkefni.
Allmiklar umræður urðu um þingsköp,
og var samþykkt á þeim breyting, sem
hafði mikið fylgi fulltrúa.
Skal nú drepið á nokkrar af þeim til-
lögum, sem samþykktar voru.
Viðvíkjandi þeim framkvæmdum, sem
nú eru á döfinni á Varmalandi, þar sem
verið er að búa til íþróttavang og sam-
komusvæði, voru samþykktar þrjár til-
lögur. Ein fól í sér tilmæli til félaga, sem
eiga ráð á samkomuhúsum, um að láta
þau sambandinu i té eitt kvöld í fjársöfn-
unarskyni í þágu Varmalandsframkvæmd-
anna. Einnig um öflun stórvirlcra tækja
til jarðvinnslu, sem nauðsynleg er vegna
þessara framkvæmda, og sú þriðja fól í