Skinfaxi - 01.04.1960, Síða 20
52
SKINFAXI
r m ® m 11 11 11 HBa ^ jfj "lí (
Ritstjóri: Þorsteinn Skúlason.
HEIMSMEISTARINN NÝI
Skákin hefur eignazt nýjan heimsmeistara.
1 byrjun maí lauk einvígi þeirra Tals og Bot-
vinniks með sigri þess fyrrnefnda: 12% : 8%.
Það, sem reið hinn mikla baggamun í ein-
vigi þessu, voru yfirburðir Tals í flóknum
og erfiðum stöðum. Botvinnik fékk oft góðar
stöður út úr byrjunum, en missti þær út úr
höndum sér í mið- og endatafli, og olli tíma-
hrak þar oft mestu um.
Hinn nýi heimsmeistari, Mikhail Tal, er fædd-
ur í Ríga 9. nóvember 1936 og er því aðeins
tuttugu og þriggja ára að aldri. Hann vakti
fyrst verulega athygli á sér, er hann sigraði á
Skákþingi Sovétríkjanna 1957, öllum að óvör-
um. Fyrir það fékk hann stórmeistaranafnbót.
Síðan hefur hann sigrað á flestum meiriháttar
skákmótum, sem hann hefur tekið þátt í. En
þau eru: Skákþing Sovétríkjanna 1958, Alþjóða-
svæðakeppnin í Portoros 1958, Alþjóðaskák-
mótið i Zurich 1959 og Áskorendamótið í Júgó-
slavíu 1959. Auk þess varð hann í 2.—3. sæti á
Skákþingi Sovétríkjanna 1959 og í 4. sæti á Al-
þjóðaskákmótinu í Ríga 1960.
Aldrei hefur heimsmeistari í skák verið svo
ungur sem Tal. Lasker kemst næst honum.
Hann var 27 ára, þegar hann vann Steinitz
1894.
Botvinnik hefur rétt til að skora á Tal aftur
„Þú kemur nú stundum á skröll með
blóm í hnappagatinu, og nú veit ég, hvern-
ig þú átt að skreyta brjóstið á þér næst:
Þú skalt hafa rós í öðru jakkalafinu og
kúadellu í hinu.“
að ári, og er vonandi að hann noti sér það. Ef
af því einvígi verður, má gera ráð fyrir, að það
verði nokkru jafnara en hið fyrra. Áskorandinn
stendur sálfræðilega betur að vígi en heims-
meistarinn. Fyrir hann er engu að tapa, en
allt að vinna.
Kristján Eiríksson, einn af yngstu
skákmeistaraefnum Skagfirðinga.
Ein af snilliskákum Tals.
Hér kemur svo skák, sem Tal tefldi við stór-
meistarann Tolush á Skákþingi Sovétríkjanna
1956.