Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1960, Síða 27

Skinfaxi - 01.04.1960, Síða 27
SKINFAXI 59 laglega. Systir húsbóndans, Harriet Stanley. leikur Áróra Halldórsdóttir með afbrigðum skemmtilega, enda er hlutverkið auðvelt, en Áróra virðist vera flestum íslenkzum leikur- um færari í að túlka skemmtilegan aumingja- skap og einfeldningslega tilbeiðslu, en hvort tveggja er oft og einatt vandleikið. Árni Tryggvason er bráðskemmtilegur smá- bæjarlæknir, en Guðmundur Pálsson er tæp- lega nógu eðlilegur blaðamaður, hefði senni- lega verið betra að velja úthverfari mann í það hlutverk. Sérstaklega góður var leikur Steindórs Hjör- leifssonar í hlutverki leikarans Beverly Carl- ton. Er þetta í annað sinn i vetur, sem Stein- dór sýnir afburðagóðan leik í litlu hlutverki. Mjög góður er einnig leikur Gísla Halldórs- sonar í hlutverki Banjos. Gestur til miðdegisverðar á vafalaust langt líf fyrir höndum, ekki aðeins i Iðnó, heldur og á leiksviðum víða um land. HJÓNASPIL. (Gamanleikur í fjórum þáttum eftir Thorn- ton Wilder. Leikstjóri Benedikt Árnason. Þýð- andi Karl Guðmundsson. Leiktjöld unnin af Lárusi Ingólfssyni, samkvæmt frumdrögum Tanaya Moiseiwitch.) Þjóðleikhúsið hefur það, sem af er þessu leikári, mestmegnis sýnt alvarleg leikrit við misjafnlega góðar viðtökur, eins og gengur þegar um alvöru er að ræða. ,,Hjónaspil“ er mjög laust við alla alvöru. Það er i leikskrá kallað gamanleikur, en eðlilegra hefði mér fundizt að kalla það farsa eða ærslaleik. Þetta er skemmtilegt grín, án nokkurs dýpri boðskap- ar undir skopinu. 1 stuttu máli er efnið það, að gamall og ágjarn kaupmaður, Hóras Vandengelder (Har- aldur Björnsson) ákveður að kvænast sökum þess, að hann telur það ódýrara en að hafa ráðskonu. Vinkona látinnar konu hans, Dollí Leví (Herdís Þorvaldsdóttir), er ráðunautur hans í konuvalinu og heldur svo vel á spilun- um, að hún sjálf hlýtur hnossið, þ. e. kaup- manninn og peningana hans að lokum. Meðan á þessu kvennavali stendur, takast ástir með Irin Molloj (Guðbjörg Þorbjarnardóttir) hatta- dömu og Kornelíus Haggel, skrifara kaupmanns- ins (Rúrik Haraldsson), en þegar frá upphafi leiksins stefndi Ermingarde, systurdóttir kaup- mannsins (Bryndís Pétursdóttir) að þvi að fá að eiga Ambrós Kemper listamann (Jóhann Pálsson). Allt endar þetta vel á heimili Flóru van Höjsen (Arndís Björnsdóttir), sem á sin- um tíma hafði orðið fyrir vonbrigðum i ásta- málum og vill nú leyfa öllum elskendum að njótast. Ekki fer milli mála, að Benedikt Árnason hefur unnið gott verk með leikstjórn sinni; hver hreyfing leikenda er í senn hnitmiðuð og eðlileg. Smekkleg leikstjöld eiga og sinn þátt í að gera hinn ytra búning sýningarinnar glæsilegan. Haraldur Björnsson er skemmtilegur maura- púki, en ekki eykur hann einum millimetra við fyrri afrek sín. Herdís Þorvaldsdóttir sýnir þarna nýja hlið á persónusköpun sinni, og er smekksatriði, hversu vel henni hefur tekizt. Persónulega kunni ég ekki við hana í þessu hluhverki, en i kringum mig heyrði ég henni hrósað. Ekki fannst mér samt sigur hennar yfir nirflinum sannfærandi. Rúrik Haraldsson var bráðskemmtilegur skrifari, og var koma hans og annara í hatta- búð frá Molloj, sem Guðbjörg lék prýðilega, hámark leiksins, bæði af hálfu höfundar og leikenda. Ekki spillti aðstoðarskrifarinn Tögger (Bessi Bjarnason) kátínunni. Hann birtist þarna í gervi seytján ára unglings, sem fer út í heim- inn í fyrsta sinn. Minnisstæðastur verður mér samt Róbert Arnfinnsson í hlutverki nýráðins skrifara. Þótt hlutverkið sé lítið, hefur Róbert gert úr því svo skemmtilega og sérkennilega persónu, að hann hefur f áar gert betri, og hefur honum þó oft vel tekizt. Hreyfingar Róberts og svipbrigði eru ein út af fyrir sig þess virði, að fara að sjá farsann (nei, gamanleikur var það). Hlutverk Bryndísar Pétursdóttur er lítið — og að vanda vex það ekki i meðferð hennar. Jóhann Pálsson skilar sínu litla hlutverki sæmilega en ekki meira, enda hlýtur að vera erfitt að leika á móti Bryndísi Pétursdóttur. Helgi Skúlason, Jón Aðils og Róbert Arn-

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.