Skinfaxi - 01.07.1960, Qupperneq 29
SKINFAXI
93
Forseti U.M.F.I.
Séra Eiríkur Eiríksson og Aðalsteinn
Sigmundsson.
Forseti U. M. F. í., séra Eiríkur Eiríks-
son, er nú fluttur að Þingvöllum. Var
hann fyrir nokkru — eins og áður getur
— skipaður þjóðgarðsvörður -— og liefur
nú verið settur prestur Þingvallapresta-
kalls.
Séra Eiríkur mun nú liafa betri aðstöðu
til að láta til sín taka mál U. M. F. í., og
er það mjög æskilegl vegna stefnu og
starfs þessa veigamikla og vaxandi fé-
lagsskapar.
Svo sem verið liefur og er stefna U. M.
F. í., er það i rauninni mjög vel til fallið,
að forseli þess sitji þann stað, sem er í
hugum þjóðarinnar tákn forns menning-
ar- og manndómsþroska og auk þess ein-
hver hinn fegursti og tignasti allra staða
á þessu fagra og sérkennilega landi.
Skinfaxi óskar séra Eiriki blessunar í
starfi sínu á Þingvöllum og væntir þess,
að U. M. F. I. megi njóta starfskrafta lians
enn um langan aldur.
★
GAMANSÖGUR
Ilætiu nú að
háfa
Egill var skipstjóri á sildarbát frá
Reykjavík. Hann var aflamaður mikill og
hugsaði helzt ekki um annað en .síldveiði,
meðan síldar var von. Sumarið 1947 var
liann á síld fyrir norðan og aflaði furðan-
lega, og svo tók Hvalfjarðarsíldin við.
Eitt sinn, þegar hann varð að stanza í
Reykjavík vegna viðgerðar á vörpunni,
skauzt liann heim til sín. Þá stóð þannig
á, að kona lians var lögzt á sæng, og liún
lá lieima, þvi troðfullt var á Fæðingar-
deildinni.
Þegar Egill var setztur að kaffidrykkju
í eldhúsinu, kom Ijósmóðirin fram til
hans með telpuhnokka á handleggnum.
Skipstjóri spratt upp og vildi inn og lieilsa
konu sinni, en ljósmóðirin sagði, að það
yrði hann að bíða með. Og eftir örstutta
stund, kom hún og sýndi honum aðra
telpuhnátu. Þá varð skipstjóranum að
orði: