Skinfaxi - 01.12.1968, Síða 3
Samvinna
féiagsheim i lanna
væri
heillaráð
Kristján Ingólfsson
Þau félagsheimili í landinu, sem byggð
eru samkvæmt félagsheimilalögum,
eru nú 137 að tölu, en af þeim eru 10
enn í smíðum. Auk þes eru allmörg fé-
lagsheimili, sem reist voru fyrir gildis-
töku laganna, starfandi víðsvegar um
land. Þessar stofnanir eiga við marg-
þættan sameiginlegan vanda að etja,
og þess vegna hefur það lengi verið á
dagskrá meðal forráðamanna þeirra að
efla til samtaka til fyrirgreiðslu sam-
eiginlegra mála.
Þetta mál var mikið rætt á sam-
bandsráðsfundi UMFÍ i haust, en þar
var borin fram tillaga um málið af
Kristjáni Ingólfssyni formanni UÍA, og
fylgdi henni ítarleg greinargerð. Sam-
kvæmt tillögu Kristjáns var sam-
þykkt að UMFl boðaði sem fyrst til
fulltrúafundar landssambanda þeirra,
er samanstanda af félögum, er aðild
eiga að félagsheimilum þeim í landinu,
sem byggð eru samkvæmt lögum um
félagsheimili (nr 77/1947 og 47/1957).
Hér er um að ræða 15 landssamtök að
UMFÍ meðtöldu.
Félagsheimilin úti um landið eru mik-
ilvægar menningarmiðstöðvar, og hafa
ungmennafélögin átt drjúgan þátt í
byggingu og rekstri fjölmargra þeirra.
Félags- og menningarstarfsemi hefur
mjög eflst við tilkomu félagsheimil-
anna, en öllum sem til þekkja finnst
þó að nýting þeirra gæti orðið fjöl-
breyttari og betri en hún er víðast
hvar. En til þess að svo megi verða
þarf nýtt átak, sem krefst samvinnu
ef hagkvæmur árangur á að nást.
Greinargerðina, sem Kristján Ing-
ólfsson lét fylgja tillögu sinni, birtum
við hér á eftir, en í henni eru gagn-
merkar upplýsingar um þetta mál:
Forsaga
Fyrir um það bil áratug höfðu nokkur
landssamtök félaga, er aðild eiga að
félagsheimilum í landinu, bundizt sam-
tökum um það, að stofna til félagasam-
taka, er rækju fyrirgreiðsluskrifstofu
hér í Reykjavík, er greiddi fyrir hinum
ýmsu félagsheimilum og leysti vanda
þeirra á ýmsan máta.
Ur þessu varð þó ekki, þar sem opin
ber yfirstjóm menningarmála í land-
inu lét í það skína, að hér mundi ríkis-
valdið koma til skjalanna og sjá um
nauðsynlegar framkvæmdir. Töldu þá
ýmsir hinna fyrrnefndu aðila, að mál-
SKINFAXI
3