Skinfaxi - 01.12.1968, Blaðsíða 17
Ungmennafélögin hafa unnið brautryðjendastarf
i starfsiþróttum. — Á landsmótum UMFÍ hefur
lengi verið keppt í mörgum greinum starfsíþrótta
og UMFÍ gekkst fyrir starfsíþróttakeppni í sam-
bandi við landbúnaðarsýninguna á síðastliðnu
sumri. Það er stcfna UMFÍ að stuðla að aukinni
iðkun starfsíþrótta og keppni í þeim. — Mynd-
irnar, sem hér fylgja, eru teknar í keppninni á
landsmótinu á Laugarvatni 1965, og sýnir keppni
í dráttarvélaakstri og nautgripadómum.
mennafélags íslands villa minnast þess
sérstaklega, að tímarit samtakanna, -—
Skinfaxi, — hefur nú komið út í nœrri
60 ár. Telur fundurinn að nota beri
betta tilefni til að allir ungmennafélag-
ar sýni í verki skilning á því, að ung-
mennafélagshreyfingunni er nauðsyn-
legt að eiga gott málgagn, sem nái til
allra ungmennafélaga á Islandi.
Það er augljóst, að Skinfaxi þarf að
vera fjölbreyttur og vel búinn að efni,
ef hann á að gegna sómasamlega hlut-
verki sínu sem málgagn samtakanna.
Yiðfangsefni ungmennafélaganna eru
mörg og fjölþætt, og starfið er mikið
víða um land. Skinfaxi þarf að skýra
frá höfuðþáttum starfsins innan hreyf-
ingarinnar, vera boðberi nýrra stefnu-
mála og nýjunga í starfi. Hann á að
vera sameiningartákn félaganna í hin-
um dreifðu byggðum, á síðum hans
eiga þeir að tala hver til annars.
En þetta getur aðeins gerzt, ef allur
þorri ungmennafélaga lítur á Skinfaxa
sem sitt málgagn. Það geta félagarnir
gert, í fyrsta lagi með því að leggja
honum til efni af mörgu tagi.
I öðru lagi með þvi að efla útbreiðslu
og í þriðja lagi með gagnrýni og holl-
blaðsins og auka áskrifendafjölda þess,
um ábendingum um það, hvernig blað-
ið skuli úr garði gert, þannig að það
þjóni sem bezt málstað hreyfingarinn-
Sambandsráðsfundurinn álítur að
nota beri 60 ára afmæli blaðsins á
næsta ári, sem kjörið tilefni til að stór
SKINFAXI
17