Skinfaxi - 01.08.1970, Page 4
FORSÍÐUMYNDIN
í landsmóti UMFÍ á
Laugarvatni 1965 tók
þátt myndarlegur hóp-
ur frá Héraðssambandi
Vestur-fsfirðinga, og
sést hluti hans á
myndinni. hað var
skarð fyrir skildi á
Eiðum 1968, þegar eng-
inn þátttakandi kom
frá HVÍ. Við vonum að
við hittum HVÍ-fólkið
aftur á Sauðárkróki
næsta sumar. Hér í
blaðinu er sagt frá
heimsókn stjómar U-
MFÍ tii HVÍ.
(Ljósm. Jóh. Vilberg).
17. Sambandsráðsfundur UMFf
Sunnudaginn 25. október n.k. verður 17.
sambandsráðsfundur UMFÍ haldinn í félags-
heimilinu Stapa í Ytri-Njarðvík.
Dagskrá fundarins verður á þessa leið:
Kl. 9,00 Morgunkaffi
— 9,30 Fundarsetning (Hafsteinn Þor-
valdsson, form. UMFÍ)
— 9,40 Kosnir starfsmenn fundarins og
skipað í umræðuhópa.
— 9,45 Skýrsla stjórnar (Hafsteinn Þor-
valdsson form. og Gunnar Sveins-
son, gjaldkeri UMFÍ).
— 10,20 Mál lögð fyrir fundinn:
a) 14. landsmót UMFÍ Guðjón
Ingimundarson).
b) Reglugerð landsmótsins (Pálmi
Gíslason).
c) Skinfaxi (Eysteinn Þorvalds-
son).
d) Erlend samskipti (Sigurður
Geirdal).
e) Félagsmálaskóli UMFÍ (Haf-
steinn Þorvaldsson).
f) Tekjumöguleikar ungmennafé-
laganna (Gunnar Sveinsson).
— 12,00 Hádegisverður í boði hreppsnefnd-
ar Njarðvíkurhrepps.
— 13,00 Skoðuð íþróttamannvirki og félags-
aðstaða í Ytri-Njarðvík.
— 14,00 Umræðuhópar starfa.
— 16,00 Kaffihlé.
— 16,30 Umræðuhópar skila áliti.
— 19,00 Kvöldverður.
— 20,00 Fundarslit.
Þess er vænzt, að forystumenn samtak-
anna hvaðanæva af landinu komi til fundar-
ins. Fundurinn tekur mörg stórmál til með-
ferðar, eins og sjá má af dagskránni. Þá
verður talsverð nýbreytni í skipulagi fund-
arins, og væntir stjórn UMFÍ þess, að hún
muni gefast vel.
4
SKINFAXI