Skinfaxi - 01.08.1970, Qupperneq 5
Þrastarskógur
Nýi íþróttavöllurinn er
upphaf stórframkvæmda
Nú í haust var lokið við að þekja nýj-
an og glæsilegan íþróttavöll, sem UMFI
hefur látið gera í Þrastaskógi. Eins og
ungmennafélögum er kunnugt hefur
þessi íþróttavallargerð verið alllengi á
döfinni, en í sumar og haust hefur verið
unnið kappsamlega að þessu verkefni,
og nú er íþróttasvæðið fullgert til notk-
unar, — 60x110 metra íþróttavöllur,
lagður túnþökum, í einstæðu umhverfi
hins fagra skóglendis í Þrastarskógi.
Stjórn UMFÍ taldi það knýjandi
nauðsyn að Ijúka íþróttavallargerðinni.
Margar ungar hendur lögðu af mörkum
dugmikið starf hér eystra í sumar til
þess að þetta mætti takast, og það tókst,
meira að segja með ótrúlega lágum til-
kostnaði.
Vonandi geta sem flestir ungmenna-
félagar, hvaðanæva að, verið viðstaddir
þegar samtökin vígja þetta nýja íþrótta-
svæði að sumri. Við skulum líka minnast
þess, að þetta er aðeins upphafið að
áformuðum stórframkvæmdum í Þrasta-
skógi. En að náðum þessum áfanga er
ekki úr vegi að rifja upp nokkra þætti
í sögu þessarar fögru landareignar UMFI
við Sog og Álftavatn.
Á 76. afmælisdegi sínum, hinn 18.
október 1911, gaf hinn kunni athafna-
maður, Tiyggvi Gunnarsson, Ungmenna-
félagi íslands landssvæði í landi Ond-
verðarness í Grímsnesi um 45 hektara
að stærð, eða eins og segir í gjafabréfinu:
„140,5 vallardagsláttur". Landssvæði
þetta liggur syðst í vesturhluta Gríms-
neshrepps og er umlukt vötnum á tvo
vegu, Soginu að vestan og Álftavatni að
norðan. Landið er allmjög mishæðótt og
algróið lágum birkiskógi, víði, lyngi og
Hafsteinn Þorvaldsson, form. TJMFÍ, og Ragn-
hildur Ingvarsdóttir kona hans unnu við aö
þekja nýja íþróttavöllinn. (Ljósm. Sig. Jónss.).
SKINFAXI
5