Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.08.1970, Page 9

Skinfaxi - 01.08.1970, Page 9
Útsýni úr I>rastaskógi til norðurs. Séð yfir Álftavatn til Búrfells. sambandsþinga er nú unnið að því að kortleggja allt landsvæðið, og er það gert á vegum Forverks hf. — Síðan er ætlunin að gera heildarskipulag um frekari framkvæmdir og mannvirkja- gerð í Þrastaskógi, og raunar óheimilt að vinna að frekari framkvæmdum á svæðinu fyrr en það liggur fyrir. Ymsir einstaklingar, ungmennafélagar og aðr- ir hafa sýnt málefnum Þrastaskógar mikinn áhuga og velvild nú hin síðari úr og veita okkur ómetanlega aðstoð við framtíðaráformin í Þrastaskógi. Fjár- veitingavaldið stvrkir ræktunarstörf í Þrastaskógi nú um árabil með 50 jrúsund kr. árlegu framlagi. Eigi Ungmennafélagi Islands að verða kleift að koma áformum sínum um upp- byggingu í Þrastaskógi í framkvæmd i næstu framtíð, verður þessum fram- kvæmdum að berast fjárhagsleg fyrir- greiðsla frá opinberum aðilum og þeim sem um ferðamál fjalla. UMFI hefur ekki möguleika á að fjármagna þessar fram- kvæmdir úr sambandssjóði, aðeins með eigin tekjum Þrastaskógar, sem vonandi aukast þó ár frá ári í næstu framtíð. — Það, sem aðkallandi er að gera í Þrastaskógi nú og þolir enga bið vegna vaxandi gestakomu í skóginum, er: Stækkun Þrastalundar til gestamóttöku og vistarverur fyrir starfsfólk, gerð tjald- stæða og gangbrauta í skóginum, fulln- aðarfrágangur íþróttasvæðisins og gerð búningsklefa, ásamt veglegum sýninga- og danspalli. Þá þarf að gera stórátak í gerð bifreiðastæða. Góðir ungmennafélagar og aðrir vel- unnarar Þrastaskógar, Þrastaskógur hef- ur verið opnaður til útivistar, leikja og íþrótta fyrir unga sem aldna. Því fylgir mikil áb\'rgð, en við treystum því, að fólk kunni að meta það við samtökin að fá tækifæri til þess að njóta þeirrar feg- urðar, sem landssvæðið í Þrastaskógi hefur upp á að bjóða og enn betri að- stöðu, sem samtökin kunna að geta skap- að þar í náinni framtíð. Vinnum öll að þvi að þetta óskabarn samtaka vorra megi varðveitast sem náttúrulegast og veita okkur gleði og hollustu útivistar í fögru umhverfi. Hafsteinn. Vegna mistaka sneri þessi mynd ekki rétt í 2. tölublaðinu í ár. Júdóíþróttinni til heiðurs leiðréttum við þessi mistök hér með. SKINFAXI 9

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.