Skinfaxi - 01.06.1974, Síða 8
FRÁBÆR ÁRANGUR
GRINDVÍKINGA
í JUDO
Judo er ung íþrótt á íslandi, en margt
bendir til þess að íslendingar eigi eftir að
geta sér gott orð fyrir þessa íþrótt, líka
í keppni á alþjóðavettvangi. Keppni ís-
lenskra judomanna á Norðurlöndum í
vetur ætti að sanna þetta. íþrótt þessi sem
er upprunnin í Japan og á rætur í æva-
gamalli austurlandamenningu, virðist
eiga mjö vel við íslendinga. Nú í vor tóku
íslenskir judomenn í fyrsta sinn þátt í
sveitakeppni Norðurlandameistaramóts-
ins og urðu þar í öðru sæti á eftir Finn-
um. í keppni einstaklinga hlutu íslensku
judomennirnir þrenn bronsverðlaun.
Judo er vandasöm íþrótt og krefst all-
mikils stofnkostnaðar þegar æfingar
byrja. Erfitt er að fá þjálfara, og judo-
dýnur eru dýrar. Þetta er meginástæðan
fyrir því að enn æfa aðeins 5 íþrótta- og
ungmennafélög þessa íþrótt. Fyrir tveim-
ur árum voru félögin þó aðeins tvö svo að
útbreiðslan gengur vel. Það sem kannski
spáir bestu um framgang þessarar í-
þróttagreinar í framtíðinni, eru vinsæld-
ir hennar meðal ungra drengja og reynd-
ar stúlkna líka. Fjölmenn judomót fvrir
unglinga og drengi allt niður í 8 ára ald-
f
{
Jóhannes Haraldsson, l.kyu, íslandsmeistari
í léttvigt og judoþjálfari Umf. Grindavíkur.
8
SKINFAXI