Skinfaxi - 01.06.1974, Síða 21
ræður meðal þátttakenda, og tókust ágæt
kynni og gott samstarf með öllum. Sér-
staklega fannst mér fróðlegt og ánægju-
legt að kynnast tyrknesku þátttakendun-
um sem voru allir úr þeim þjóðfélagshóp-
um sem af dirfsku og einurð hafa brotið
af sér andlega kúgun og stjórnmálaof-
sóknir hálffasistískrar stjórnar sem réði
ríkjum í skjóli hersins frá árinu 1971 þar
til s. 1. haust.
Þá er skylt að geta þess að móttökur
af hálfu tyrkneska æskulýðssambandsins
voru með ágætum, svo og skipulagning
semínarins og fyrirgreiðsla öll. Semínarið
var haldið í þokkalegu hóteli á strönd
Sæviðarsunds í útborginni Bebek. Tími
gafst til að fara í siglingu um sundið og
stíga á land á strönd Asíu. Þá var einnig
farið í fróðlega kynnisferð um hinn sögu-
fræga gamla borgarhluta vestan Gullna
hornsins þar sem veldisstóll Bysans-ríkis-
ins stóð og norrænir væringjar skunduðu
um gráir fyrir járnum á löngu liðnum
öldum.
Freistandi væri að kynna lesendum
þessa merkilegu borg að einhverju marki,
en til þess er lítið rými hér. Tyrkir eru
gestrisnir og greiðvirknir, og þama er
auðvelt að kynnast háttum og siðum þó
að tyrknesk tunga sé manni framandi.
Það er auðvelt að rata og þekkja til
átta í borginni þótt stór sé. Hún skiptist
í þrjá meginhluta: Gamla borgarhlutann
milli Marmarahafs og Gullna hornsins
(sem væringjar nefndu Stólpasund), en
það er þröngur fjörður sem skerst 7 km.
inn í landið, nýrri borgarhlutann,
Beyoglu, sem er austan við Stólpasund
og svo Uskúdar, en það er borgarhlutinn
austan Bosporus. Istanbul mun vera eina
borg heims sem byggð er í tveimur
heimsálfum.
Borgin á sér ævagamla sögu, en það
var Konstantínus mikli sem gerði hana
að höfuðborg rómverska keisaradæmis-
ins árið 330, og bar borgin nafn hans
(Konstantínópolis) allt þar til Tyrkir
lögðu hana undir sig 1453 og austur-
Stóri basarinn í Istan-
bul er furðulegt völund-
arhús og dregur til sín
gífurlegan mannfjölda,
enda er margt forvitni-
legra muna þar á boð-
stólum.
'
SKINFAXI
21