Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1980, Síða 13

Skinfaxi - 01.06.1980, Síða 13
íslandsmótið í knattspyrnu Nú er keppnistímabilið í knattspyrnu að hefjast. Ráðnir hafa verið þjálfarar og liðsmenn leggja hart að sér við æfingar, ferðalög og keppni. Menn velta fyrir sér hvernig hin einstöku lið munu standa sig í sumar. Spáð er til um röð liðanna og hver heldur að sjálfsögðu með sínu liði. Það ber ekki mikið á ungmennafélögunum í þessari baráttu enda beinist athyglin mest að liðum í 1. deild. Skinfaxi bað Steinþór Pálsson að vinna upp skrá yfir aðildarfélög UMFÍ sem taka þátt í ís- landsmótinu að þessu sinni. í III. deild eru 37 lið og af þeim eru 31 frá aðildarfélögum UMFÍ. Þessi lið eru: Knatlsp.fcl. Katla, V-Skaftafellssýslu. íþr.fél. Kópavogs (ÍK). Umf. Hekla, Hellu. Umf. Grindavíkur. íþr.fél. Grótta, Seltjarnarnesi. Umf. Afturelding, Mosfellssvcit. Umf. Hveragerðis og Ölfuss. Umf. Njarðvíkur. Umf. Stjarnan, Garðabæ. Umf. Skallagrímur, Borgarnési. Umf. Víkingur, Ólafsvík. Umf. Snæfell, Stykkishólmi. Umf. Bolungarvíkur. Umf. Reynir, Hellissandi. Umf. Haukar, Þrestir og^Vísir (HÞV). íþr.fél. Leiftur, Ólafsfirði. Héraðssamband S-Þingcyinga (HSÞ). Iþr.fél. Magni, Grenivik. Umf. Árroðinn, Öngulsstaðahr., Eyjaf. Umf. Tindastóll, Sauðárkróki. Umf. Efling, S-Þing. Ungmennasamband A-Húnvetninga (USAH). Umf. Reynir, Árskógsströnd. Umf. Dagsbrún, Glæsibæjarhrcppi, Eyjafjarðarsýslu. Umf. Sindri, Höfn Hornafirði. Umf. Hrafnkell Freysgoði, Breiðdalsvík. Umf. Valur, Reyðarfirði. Ungmennasamband Vestur- Skaftafellssýslu hefur í tilefni af 10 ára afmæli sinu gefið út vand- að afmælisblað. Blaðið er 56 síður, þar af 8 prentaðar í lit og efni er hið fjölbreyttasta. Þá er einnig þess að geta að í blaðinu er kynnt hugmynd að merki fyrir USVS sem síðan var samþykkt á þingi þeirra fyrir skömmu. Skinfaxi óskar USVS til ham- ingju meðafmælið. Umf. Súlan, Stöðvarfirði. Umf. Einherji, Vopnafirði. íþr.fél. Huginn, Seyðisfirði. Umf. Leiknir, Fáskrúðsfirði. Vegna hins mikla fjöida er deild- inni skipt niður í 6 riðla eftir landshlutum. í II. deild eru 10 lið og af þeim eru fjögur aðilar að UMFÍ. Þau eru: íþr.fél. Völsungur, Húsavík sem varð sigurvegari í III. deildinni síðastliðið ár. Umf. Austri, Eskifirði. íþr.fél. Þróttur, Neskaupstað. Umf. Selfoss. í I. deildinni er það Umf. Breiðablik sem heldur heiðri ungmennafélaganna á lofti. En blikarnir sigruðu II. deildina í fyrra og endurheimtu því sæti sitt í I. deild að nýju eftir ársdvöl í II. deild. í kvennaknattspyrnu stóðu stelpurnar úr Breiðablik sig mjög vel, þær urðu Islandsmeistarar utanhúss 1979 og einnig innan- húss nú í ár. Auk þessara liða leika um 70 lið frá ungmennafélögum í yngri flokkum. Það eru því yfir 100 lið sem taka þátt í íslandsmóti KSÍ. En auk þess eru mörg félög sem taka ekki þátt í þessu móti heldur keppa í innanhéraðs- mótum og fleiri slíkum. Á þessu sést hversu mikið af starfi ung- mennafélr.„unna er í kringum knattsp; nu. En þó er það aðal- lega karlkynið sem stundar þessa íþrótt og væri það óskandi að fleiri kvennalið kæmu fram á sjónarsviðið. Frá útgáfustarflnu SKINFAXI 13

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.