Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1982, Síða 3

Skinfaxi - 01.04.1982, Síða 3
SKINFAXI 2. tbl. - 73. árg. — 1982 ÁSKRIFTARVERÐ: 100 kr.árgangurinn. • ÚTGEFANDI: Ungmennafélag íslands. RITSTJÓRI: tngólfur A. Steindórsson. RITNEFND: fón G. Guðbjörnsson, Bergur Torfason, Guðjón Ingimundarson. AFGREIÐSLA SKINFAXA: Skrifstofa UMFÍ Mjölnisholti 14, Reykjavík. Sími 14317. SETNING OG UMBROT: Leturval sf, Árrnúla 36. OFFSETPRENTUN: Brentval, Súðarvogi 7. MEÐAL EFNIS: ^réttir af þingum 4 Rætt við Þórð Jónsson í Laufahlið 8 Rætt við Guðbjöm Guðmundsson 9 Göngudagur fjölskyldunnar 10 UMFÍ75ára — Eflum íslenskt 12 NSU-vikan hérlendis í annað sinn 13 AAG 15 Gnglingameistaramót Norðurlanda í fimleikum 16 Skinfaxi kynnir 18 I lugleiðing um afrekaskrána 20 Afrekaskrá UMFÍ 1 frjálsum íþróttum 1981 24 Skólamót USVS og USÚ 1982 27 Vísnaþáttur Skinfaxa 29 Viðtal við Pál Sigurðsson formann USVH 30 Sextíu ára afmælishátíð UMSK 32 UMSE 60 ára 33 FORSÍÐUMYNDIN: G’rsídumyndin er af Kristínu Gísladótt- llr, Iþróttafélaginu Gerplu í keppni á tví- slá á Unglingameistaramóti Norðurlunda 1 fimleikum. Sagt er frá mótinu í blaðinu. p \ JAFNRÉTTI Undanfarin ár hefur mikið verið rætt og ritað um jafnrétti. Umræða þessi og athafnir hafa tekið á sig ýmsar myndir og nú síðustu mánuðina hefur mest verið rætt og ritað um kvennaframboð. Ekki virðist augljóst að slíkt framboð samrýmist jafnréttishugsjón- inni. I kosningunum til sveitastjórna nú í vor verða konur með sérstakt framboð bæði í Reykjavík og Akur- eyri, þar sem listarnir eru eingöngu skipaðir konum. Pólitísku ílokkarnir hafa lagt meira kapp en nokkru sinni fyrr á að fá konur í próíkjör og í svokölluð örugg sæti á listum sínum. Einnig eru konur í ílestum tilvik- um í baráttusætum flokkanna. Ljóst er því, að ef konur af kvennalistunum ná kjöri fella þær jafnframt konur af hinum listunum. Mikið vantar á að konur taki virkan þátt í stjórnar- störfum hjá frjálsum félagasamtökum til jafns við karl- menn. Ungmennafélag Islands eru fyrstu félaga- samtök hér á landi þar sem konur hafa jafnan rétt á við karlmenn með atkvæðisrétt og kjörgengi. Þrátt fyrir ákvæði í lögum UMFI um jafnrétti, hafa konur lítið verið í ábyrgðarstöðum innan hreyfingarinnar. Þó hef- ur orðið þar á mikil breyting nú síðastliðin ár. Nú eru konur formenn í þremur stórum héraðssamböndum og miklu algengara er að konur séu í stjórnum sam- banda en áður var. Hér er um að ræða ákveðna þróun innan hreyfingar- innar, sem rekja má m.a. til námskeiða Félagsmála- skóla UMFÍ. Námskeiðin hafa verið haldin vítt og breitt um landið síðastliðin 10 ár. Þáttaka kvenna í þessum námskeiðum hefur farið vaxandi. Með auk- inni menntun á félagsmálasviðinu hafa konur verið fúsari til að taka að sér ábyrgðarstörf í stjórnum félaga en áður var. Hvort sem um er að ræða karla eða konur, er besta leiðin til undirbúnings fyrir þáttöku í stjórnmálum, aukin menntun, fræðsla og þjálfun í félagsmálum og aukin þáttaka í stjórnarstörfum frjálsra félagasam- taka. IS <________________________________________) skinfaxi 3

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.