Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1985, Síða 5

Skinfaxi - 01.10.1985, Síða 5
Hveijii eiu menn- irnir? Þegar ljósmyndasafn Skinfaxa er skoðað rekst maður á mjög margar skemmtilegar myndir er hafa verið teknar við hin ýmsu tækifæri. Til gamans birtum við hér tvær úr safninu og spyrjum hvaða menn eru þetta á myndun- um? Þeir sem þykjast vita hverjir mennirnir eru geta sent okkur bréf með nöfnum þessara manna og átt möguleika á að eignast bók UMFÍ Ræktun lýðs og lands eða hljómplötu með hljómsveitinni Aþenu frá Egilsstöðum, en hún sigraði í hljómsveitakeppninni í Atlavík árið 1983. Veitt verða þrenn verðlaun fyrir rétt svör, og verður dregið úr réttum lausnum ef mörg rétt svör berast. Munið bara ef þið verðið með í þessum leik okkar að tilgreina nafn ykkar og heimilisfang og póstnúmer. Spreytið ykkur nú á þessum myndum og sendið okkur svör ykkar. Getiauníi Þegar gluggað er í ársskýrslu UMFÍ er lögð var fram fyrir síðasta sambandsþing kemur í ljós að tekjur ungmennafélaga af sölu get- raunaseðla hafa farið vaxandi. Rekstrarárið 1981—82 voru tekjur 20,05% af heildartekjum en rekstrarárið 1984—85 voru tekjurnar orðnar 23,31% af heildartekjum. Þetta sýnir að ungmennafélögin standa sig nokkuð vel í að selja getraunaseðla þó alltaf sé hægt að gera betur. En því má skjóta hér inn að UMFÍ á 20% í íslenskum Getraun- um og hefur salan því síðustu árin verið vel yfir þeirri prósentu, en sölulaun til félaga eru 25% af seldum seðlum. Því ættu öll ungmenna- félög að kynna sér vel þessa góðu og miklu tekjulind. SKINFAXI 5

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.