Skinfaxi - 01.10.1985, Blaðsíða 38
f
í minningu
Axels Jónssonar
Axel Jónsson fyrrv. alþingis-
maður lést 31. ágúst s.l. aðeins 63
ára að aldri. Axel var mikill fé-
lagsmálamaður og starfaði mikið
á þeim vettvangi allan sinn aldur
bæði í stjórnmálum og í ung-
mennafélagshreyfingunni. Hann
gerðist mjög snemma virkur þátt-
takandi í frjálsum íþróttum og
keppti á mörgum íþróttamótum
fyrir félag sitt Ungmennafélagið
Dreng í Kjós og svo fyrir Ung-
mennasamband Kjalarnesþings.
Á Landsmóti UMFÍ í Haukadal
varð Axel stigahæstur einstak-
linga á mótinu en þar keppti hann
fyrir UMSK.
Snemma fóru að hlaðast á
hann allskonar trúnaðarstörf fyr-
ir ungmenna- og íþróttafélags-
hreyfinguna. Hann var formaður
Umf. Drengs á árunum 1946—49
og formaður UMSK á árunum
1950—56. Eftir að Axel flutti í
Kópavoginn úr Kjósinni sat hann
um tíma í stjórn Umf. Breiða-
bliks. Á árunum 1955—57 sat
hann i stjórn UMFÍ og var meðal
annars i undirbúningsnefndinni
fyrir Landsmótið á Þingvöllum
1957. Hann var svo í stjórn ÍSÍ á
árunum 1959 til 64. Ekki stóð
Axel einn í þessu mikla félags-
málastarfi, því hann gekk árið
1943, að eiga Guðrúnu Gísladótt-
ur frá írafelli í Kjós. Þau reistu
nýbýlið Fell úr hluta úr landi jarð-
arinnar Blönduholti, og þar eign-
uðust þau börn sín þrjú. Þau
flytjast svo frá Felli í Kópavoginn
árið 1953 og tók Axel þá við starfi
við Sundlaugarnar í Reykjavík.
Axel sat í 20 ár í bæjarstjórn
Kópavogs auk þess að vera á Al-
þingi frá 1963—78 bæði sem
varaþingmaður og sem þingmað-
ur. Auk allra þessara félagsstarfa
sem hér hafa verið talin, átti Axel
sæti í stjórnum fjölmargra félaga
og stofnana. Þó störfin hafi verið
mikil og mörg þá fylgdist hann
jafnan mikið með því sem var að
gerast í ungmennafélagshreyfing-
unni og mætti á mörg þing hjá
UMSK. Ásíðastaársþingi UMSK
var Axel sæmdur gullmerki
UMFÍ fyrir hans miklu og fórn-
fúsu störf í hreyfingunni.
Um leið og Ungmennafélag ís-
lands þakkar Axel fyrir störf hans
i þágu ungmennafélagshreyfing-
arinnar sendir UMFÍ eftirlifandi
eiginkonu hans Guðrúnu Gísla-
dóttur, börnum og barnabörnum
innilegar samúðarkveðjur.
G.G.
38
SIUNFAXI