Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1985, Blaðsíða 27

Skinfaxi - 01.10.1985, Blaðsíða 27
Ahugi eða skyldurœkni? Það hefur vakið mikla undrun og vonbrigði hjá undirrituðum síðan hann tók við ritsjórn Skin- faxa að sjá hve lítinn áhuga ung- mennafélagar sýna blaðinu. Og á ég þá bæði við efnisval og þó einkum dreifingu blaðsins og skil á áskriftum. Nú í dag eru félagar í ungmennafélögum tæplega 27.000 talsins og ungmennafélög- in215. Af þessum fjölda eru kaup- endur Skinfaxa rúmlega 2400 og Áskrifendur Skinfaxa í hverju héraðssambandi fyir sig. Héraðssamb. Fjöldi áskrif. Félagsmenn % af félagsm. UMSK 286 6287 4,55 UMSB 159 1120 14,20 HSH 34 787 4,40 UDN 51 593 8,60 HHF 30 456 6,50 HVÍ 79 525 15,10 HSS 127 476 26,70 USVH 55 533 10,30 USAH 61 618 9,90 UMSS 136 780 17,50 UÍÓ 23 515 4,50 UMSE 204 1303 15,70 UNÞ 52 526 9,90 HSÞ 137 1687 8,20 UÍA 202 3272 6,20 USÚ 82 542 15,20 USVS 70 321 21,90 HSK 363 3350 10,85 Umf. Geisli 7 163 4,30 UMFK 35 998 3,50 UMFN 1 901 0,12 UMFG 7 521 1,40 UMFB 24 426 5,70 þar af 179 ungmennafélög og hér- aðssambönd. Það segir að um 11 félagsmenn í hverju ungmennafé- lagi kaupi blaðið þ.e. rúmlega fjöldi stjórnarmanna í hverju fé- lagi. En fjöldi þeirra sem var í stjórnum og nefndum ung- mennafélaga á síðasta ári var rúmlega 4000, þannig að það vantar verulega upp á að allir þeir kaupi blaðið hvað þá allir félags- menn. Það hlýtur að vera alvar- legt umhugsunarefni fyrir ung- mennafélögin að ekki skuli fleiri kaupa blaðið í svona fjölmennri hreyfingu. Það sem er þó hvað al- varlegast er hve léleg skil eru á áskriftargjöldum bæði hjá félags- mönnum og ekki síst hjá ung- mennafélögunum sjálfum. Nú þegar þetta blað kemur út hafa aðeins 37 félög greitt sín áskrift- argjöld þ.e. 20% af þeim er kaupa blaðið. Þetta sýnir að ungmenna- félögin verða að láta sig þetta mál eitthvað varða og gera nú róttæk- ar aðgerðir í að auka áskrift á blaðinu og gera betur skil en raun ber vitni. Hér á eftir kemur ein tafla er sýnir fjölda þeirra er kaupa blaðið í hverju héraðs- sambandi fyrir sig og hlutfall kaupenda af skráðum félags- mönnum. En eftir að hafa tekið þetta saman finnst mér að menn kaupi blaðið meira af skyldu- rækni en áhuga, því verðum við að taka höndum saman og breyta þessu. Guðm. Gíslason. SKINFAXI 27

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.