Skinfaxi - 01.10.1985, Blaðsíða 15
Námskeiö í Finnlandi
Unniö viö aö klippa myndina. Ljósm. Skiníaxi/GG
Dagana 27. til 29. sept. var
haldið námskeið í blaðaútgáfu og
videóþáttagerð i borginni Karis í
Finnlandi. Var þetta námskeið á
vegum NSU en allur undirbún-
ingur var í höndum Finna og
voru leiðbeinendur einnig frá
Finnlandi. Námskeiðinu var skipt
í tvo hópa, í öðrum var farið í
gegnum það hvernig skal búa til
mynd með myndbandi og upp-
tökuvél, í hinum hópnum var
unnið að útgáfu á fréttablaði. Frá
UMFÍ sóttu þetta námskeið Sig-
urður Geirdal og Guðmundur
Gislason, fór Sigurður í hópinn er
vann að þáttagerðinni á mynd-
band en Guðmundur í hópinn er
vann að útgáfu fréttablaðs. Þetta
námskeið var mjög gagnlegt og
skemmtilegt, því það byggðist
eingöngu upp á vinnu en ekki fyr-
irlestrum. Var unnið frá kl. 9 á
morgnana til kl. 11 á kvöldin með
matar- og kaffihléum. Eftir há-
degi á sunnudeginum sýndu svo
hóparnir afrakstur vinnu sinnar,
myndbandshópurinn sýndi rúm-
lega 5 mínútna mynd er hann
hafði gert um skólann er nám-
skeiðið var haldið í og blaðahóp-
urinn sýndi blað er hann hafði
unnið að. Blaðið var þó ekki fjöl-
faldað heldur hengt upp á vegg til
sýnis og var 12 siður að stærð í
dagblaðsformi. Sýndi þetta nám-
skeið okkur hve miklir möguleik-
ar felast í notkun myndbands í
starfi okkar, einnig sýndi það
okkur hvað við erum í raun fram-
arlega í allri blaðaútgáfu miðað
við önnur sambærileg félög á hin-
um Norðurlöndunum. Öll að-
staða og aðbúnaður í skóla þeim
er námskeiðið var haldið í var eins
og best er hægt að hafa fyrir
svona lagað, einnig var gistiað-
staða góð og svo fæðið.
Vísizr á þingi UMFÍ
Eins og áður hefur verið getið
hér í blaðinu þá verða vísur til við
hin ýmsu tækifæri. Og birtum við
hér tvær er urðu til á 34. Sam-
bandsþingi UMFÍ er haldið var
að Flúðum dagana 6. til 8. sept.
s.l. Báðar urðu til vegna tillögu
um að stjórnarmenn UMFÍ væru
ekki nema 10 ár í einu í stjórn.
Guðmundur með gæðing sinn,
geysist fram á völlinn.
Best er að senda Berg og Finn,
beina leið í tröllin.
(höfundur kýs að kalla sig F)
Hér er átt við Guðmund Kr.
Jónsson formann HSK, en hann
sagðist eiga einn gæðing í stjórn
UMFI og þyrfti ekki annan.
Kynnt skal undir kötlum senn,
kurla fallnir stjórnarmenn,
svo líflegt verði lið í stjórn,
ei lengra en 10 ára fórn.
(höfundur ókunnur)
15
SKINFAXI