Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1985, Blaðsíða 11

Skinfaxi - 01.10.1985, Blaðsíða 11
íþróttir í útvarpi Það hefur ekki farið framhjá þeim er fylgjast náið með íþrótt- um að útvarpið hefur ráðið tvo íþróttaféttamenn til að annast all- ar íþróttafréttir í stað eins áður. Samúel Örn Erlingsson. Hefur þetta tekist mjög vel það sem af er, því allur fréttaflutning- ur af íþróttaviðburðum hefur aukist mjög og verið mun fjöl- breyttari en áður var. Hafa íþrótt- ir fengið meira pláss í dagskránni bæði á Rás 1 og Rás 2, en með til- komu þeirrar rásar jukust mögu- leikarnir á að gera íþróttum betur skil. Hafa íþróttafréttamenn út- varps þeir Samúel Örn Erlingsson og Ingólfur Hannesson staðið sig mjög vel síðan þeir tóku til starfa s.l. vor. Þeir hafa bryddað upp á mörgum nýjungum í fréttaflutn- ingi og verið mjög duglegir að fylgjast með sem flestum íþrótta- greinum og koma því á framfæri hvort sem það er innan lands eða utan. Þá hafa íþróttalýsingar þeirra verið góðar og fjölbreyttar þ.e. lýst hefur verið frá mjög mörgum íþróttagreinum. Ekki er Ingólfur Hannesson. að efa að þetta starf þeirra félaga hefur átt mikinn þátt í að auka skilning og áhuga þjóðarinnar á íþróttum bæði sem landkynning og holl hreyfing og síðast en ekki síst gott og skemmtilegt tóm- stundagaman. Skinfaxi vill þakka þeim félögum kærlega fyr- ir gott og mikið starf sem vonandi er þara rétt að byrja. G.G. Skiníaxi meö þeim elstu Á námskeiðinu í Finnlandi lágu frammi félagsblöð frá mjög mörgum félögum í Noregi, Dan- mörku, Svíþjóð, Finnlandi ogsvo Skinfaxi frá íslandi. Er þessi blöð voru skoðuð en þau hafa verið um 20—25 talsins kom í ljós að Skin- faxi hafði nokkra sérstöðu miðað við hin blöðin öll. Var sú sérstaða aðallega fólgin i tvennu þ.e. Skin- faxi var elsta blaðið í hópnum og það eina er fjallað um íþróttir. Hin blöðin fjölluðu ekkert um íþróttir heldur um ýmislegt félagsstarf t.d. fundi, félags- heimili, viðtöl, ferðalög, matar- uppskriftir og einnig fugla, svo Skinfaxi er ekki eina blaðið er fjallar um þá. Fjöldi tölublaða á ári var líka mjög mismunandi allt frá fjórum upp til 52 þ.e. einu sinni í viku. Einnig var mismun- andi mikið lagt í blöðin þ.e. rnyndir, pappír og prentun og verður að segja að Skinfaxi telst til þeirra vandaðri miðað við þetta. 11 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.