Skinfaxi - 01.10.1985, Blaðsíða 9
Jú, jú, en maður hefur lítið tek-
ið eftir því þetta kemur í Ijós ef
við förum að vinna að áheitum í
sundinu og þurfum að senda bréf
til fyrirtækja og biðja um pen-
inga þá kemur kannsi meira út úr
því.
Hvernig finnst ykkur vera stutt
við ykkur í sundinu, nú hefur
maður heyrt að t.d. í knattspyrn-
unni sé greitt fyrir stig eða skoruð
mörk er eitthvað slíkt hjá ykkur?
Nei, maður fær ekki krónu.
Þetta er bara hrein áhuga-
mennska?
Já, sko ég get nefnt þér það ef
ég ætti heima t.d. í Svíþjóð, Dan-
mörku eða Noregi þá væri ég bú-
inn að fá hellings pening. Því þar
eru fyrirtæki er koma til þeirra er
ná einhverjum árangri og biðja þá
að auglýsa fyrir sig og greiða pen-
ing fyrir það. Ég þekki nokkra
stráka sem eru búnir að stór-
græða á því.
Þú varst úti hjá Guðmundi
Harðarsyni í Danmörku, hvernig
likaði þér það?
Það var ágætt að vissu leyti. En
ég fékk ekki nógu mikið út úr því.
Ég ætlaði eiginlega að fara í skóla
og mennta mig aðeins en það
þýddi ekki, það var alltof lítið
fannst mér bara að æfa.
Finnst þér að við ættum að
gera eins við okkar toppmenn í
íþróttum og gert er erlendis þ.e.
borga þeim fyrir unnin afrek?
Já, vatniövarblautt. Ljósm, Skin-
íaxi/GG
Nei, ég held bara að það sé ekki
grundvöllur fyrir því þar sem fyr-
irtæki og aðrir eru ekki það vel
stæð til þess.
En hvað með Sundsamband ís-
lands hefur það staðið vel við
bakið á ykkur?
Ég hef nú lítið haft samskipti
við Sundsambandið nema þá
þegar um utanlandsferðir er að
ræða. Þar hafa þeir komið nokk-
uð vel á móti manni en það mætti
vera aðeins meiri stjórn á þessu
t.d. með mót þá er maður látinn
vita með mjög stuttum fyrirvara.
Það ruglar mann í einbeitingunni
þar sem maður veit ekki hvort
maður á að fara eða ekki og ekki
er hægt að æfa eins markvisst fyr-
ir mótið.
Þú fórst ekki á Olympíuleikana
hvers vegna var það?
Ég var mjög sár með hvernig
staðið var að þessu. Þeir hringdu
til mín einum og hálfum mánuði
fyrir keppnina þar sem þeir voru
búnir að segja tveim mánuðum
fyrir hana að það færi enginn. Ef
það færu einhverjir þá væru það
einhverjir gæjar er væru út í Sví-
þjóð og Bandaríkjunum. Er þeir
hringdu var ég byrjaður að vinna
og hættur að æfa um sumarið, þá
var mér boðið að fara en ég sagði
þeim bara að eiga sig. Ég lít svo á
að Olympíuleikarnir séu þannig
að maður verði að ná góðum ár-
angri bæði fyrir sig og þjóðina,
það sé bara ekki hægt að kasta
höndunum til þess.
En þú stefnir þá núna á næstu
Olympíuleika í Seoul 1988?
Já, ég er þegar búinn að ná lág-
markinu fyrir þá svo það er bara
að halda sér í sem bestri æfingu
þangað til.
En hvað er framundan hjá þér
í vetur og á næsta ári?
Það eru nokkur góð mót hér
heima í vetur og svo er heims-
meistaramótið á næsta ári er ég
stefni mest á og haga mikið af
Eövarö crð leik viö þá yngstu.
Ljósm. Skiníaxi/GG
undirbúningi mínum í vetur með
tilliti til þess.
Hvað fara margir tímar á viku
í æfingar?
Ætli það séu ekki um 40 tima í
allt 6 daga vikunnar, en ég tek
mér frí alltaf á mánudögum.
Hvernig nærðu þá að sameina
æfingarnar og svo skólann?
Það gengur bara nokkuð vel að
sameina þetta hvoru tveggja þó
maður láti lærdóminn oftast
mæta afgangi, en ekki þó þannig
að það komi niður á náminu.
Hvernig líst þér á þá hugmynd
að á Landsmóti UMFÍ er verður á
Húsavík 1987 verði sundkeppnin í
Mývatssveit?
Mér finnst það ófélagslegt fyrst
og fremst. Maður fer til að kynn-
ast fólki og fylgjast með sem
flestu, en með þessu móti yrði
þetta sérmót fyrir sundið.
Þú hefur góðan þjálfara er það
ekki?
Jú, mjög góðan, ég tel Friðrik
vera þann besta á landinu í dag.
Hann hefur þjálfað mig lengi og
við náum vel saman.
Jæja Eðvarð ég þakka þér nú
kærlega fyrir þetta spjall og vona
að þetta sé aðeins byrjunin hjá
þér í sundinu.
Þakka þér sömuleiðis.
Með þessum orðum látum við
þessu stutta spjalli lokið við
þennan geðþekka Njarðvíking og
óskum honum velfarnaðar i
framtíðinni.
SKINFAXI
9