Skinfaxi - 01.10.1985, Blaðsíða 16
Oiyggisspíia-
mennska
Iógjaldiö veröur aö greiöa
____ Guömundur P. Ainarson
Eitt sinn vann höfundur þess-
ara orða sumarlangt hjá trygging-
arfélagi. Það er orðið svo langt
um liðið siðan þetta var að ég
man ekki lengur hvað ég gerði
þarna eða átti að gera, en einu at-
viki frá þessum dögum gleymi ég
þó seint. Gamall maður gekk inn
á skrifstofuna og gaf sig á tal við
sölumann ferðatrygginga. Hann
var að fara í sina fyrstu utan-
landsreisu og ætlaði að slysa-
tryggja sig, að ráðleggingu vinar
síns. Og í þeim erindum var hann
kominn til tryggingarfélagsins.
Sölumaðurinn sagði honum hvað
tryggingin kostaði og gamli mað-
urinn spurði á móti hvaða bætur
hann fengi ef eitthvað kæmi fyrir
hann. Honum var skýrt frá því og
virtist sá gamli láta sér vel líka.
„En ef ekkert hendir mig,“ spurði
hann þá. Þessi spurning kom
nokkuð flatt upp á sölumanninn,
sem sagði einfaldlega að þá gerð-
ist ekki neitt. „Nú jáþ sagði sá
gamli, „fæ ég þá peningana mína
ekki endurgreidda?“ Sölumaður-
inn var ekki sérlega munnstór
maður, en hann varð svo undr-
andi við þessa spurningu að það
mátti fylgjast með hádegismatn-
um meltast í maga hans. Þegar
hann loksins gat stunið upp svari,
stóð gamli maðurinn upp, reiður
og tortrygginn, og yfirgaf svæðið
með þeim orðum að það væri sko
eitthvað bogið við fyrirtæki sem
svona hagaði sér.
Gamli maðurinn skildi greini-
lega ekki á hverju starfsemi trygg-
ingafélaga byggðist. En það vita
bridsspilarar hins vegar mæta vel,
því þeir eru oft og iðulega tilbúnir
til að greiða iðgjald í slagaformi
til að tryggja sig gegn slæmri
legu. Það heitir á bridsmáli
„öryggisspilamennska". Lítum á
tvö dæmi:
Suður gefur; allir á hættu.
Rúbertubrids.
Norður
s ÁK104
h ÁDG
t G104
1 Á73
Suður
s 762
h K7
t ÁK832
1 KD2
Eina hættan i spilinu er sú að
tígullinn liggi 5—0. Ef norður á
tíglana fimm má hvorki leggja
niður tígulás né spila gosanum úr
borðinu. Til að tryggja sig gegn
þessari legu verður að spila smá-
um tígli á gosann. Komi 5—0 leg-
an í ljós er farið aftur heim og
spilað á tíuna. Þannig fást örugg-
lega fjórir slagir á tígul, sem er
allt sem þarf.
Vestur
s 83
h 1092
t D9765
I 1054
Norður
s ÁK104
h ÁDG
t G104
I Á73
Austur
s DG95
h 86543
t —
I G986
Á meðan andstæðingarnir
pössuðu fýldir á svip sögðu N/S
þannig:
Norður
Suður
s 762
h K7
t ÁK832
1 KD2
2 spaðar
6 grönd
Suður
1 tígull
2 grönd
Pass
Vestur kemur út með hjartatí-
una. Og nú er það spurningin:
hvernig er hægt að fá bara 12
slagi!!? Og ennfremur, hvers
vegna er rétt að reyna ekki að
vinna sjö?
Það verður að játast að þessi
lega er býsna sjaldgæf, tíðnin er
um 2%. En það verður að teljast
sanngjarnt að greiða 30 stig fyrir
hugsanlegan yfirslag til að verja
sig gegn því að tapa slemmunni
eða 1440 á hættunni.
Það er ástæðulaust að vera
bjartsýnn þegar maður þarf ekki
á því að halda. Þetta er hugsunin
að baki öryggisspilamennsku. í
rúbertubrids vakti norður í fyrstu
hendi á einu grandi og suður
stökk beint í fjögur hjörtu:
16
SKINFAXI