Skinfaxi - 01.10.1985, Blaðsíða 12
34. Sambandsþing UMFI
Guömundui Gíslason
Pálmi Gíslason íorm. UMFÍ sæmir Þórö Pálsson íyrrv. skógarvörö í
Þrastaskógi gullmerki UMFÍ. Ljósm. Skinfaxi/GG
34. Sambandsþing UMFÍ var
haldið dagana 6.—8. sept. s.l. að
Flúðum. Þingið stóð nú í tæpa
þrjá daga, en það var vegna þess
að farið var með alla þingfulltrúa
i Þrastaskóg og þeim sýndur
skógurinn. En þingið byrjaði á
föstudagskvöldið 6. sept. og setti
Pálmi Gíslason formaður það og
rakti helstu verkefni síðustu
tveggja ára. Stærsta verkefnið á
þessu timabili var 18. Landsmót
UMFÍ sem haldið var í Keflavík
og Njarðvík. Tókst það mót mjög
vel og var fjölmennasta mótið til
þessa bæði hvað varðar þátttak-
endur og svo þátttöku sambands-
aðila UMFÍ. Voru öll héraðs-
sambönd innan UMFÍ og félög
með beina aðild skráð til leiks en
eitt forfallaðist á síðustu stundu
vegna veðurs. Eftir að Pálmi
hafði sett þingið voru skýrsla og
reikningar lögð fyrir þingið. Kom
þar fram að fjárhagsstaða UMFÍ
er mjög góð um þessar mundir,
enda stefnt að því þar sem fyrir-
hugað er að skipta um húsnæði á
næstunni, því núverandi húsnæði
hefur þegar sprengt utan af sér
starfsemina. Einungis þrír þing-
fulltrúar tóku til máls um skýrslu
stjórnar og reikninga, en eftir að
reikningar höfðu verið sam-
þykktir var ávarp gesta. Gestir
þingsins voru Sveinn Björnsson
forseti ÍSÍ og Þórður Þorkelsson
gjaldkeri ÍSÍ, Hafsteinn Þor-
valdsson fyrrverandi formaður
UMFÍ og kona hans Ragnhildur
Ingvarsdóttir og Jóhannes Sig-
mundsson fyrrverandi formaður
HSK. Að þessum lið loknum var
þingi frestað til morguns. Strax í
býtið morguninn eftir var farið
með þingfulltrúa í Þrastaskóg og
labbað um skóginn. Stoppað var
við styttuna af Aðalsteini Sig-
mundssyni og þar sæmdi Pálmi
Gíslason formaður UMFÍ Þórð
Pálsson fyrrv. skógarvörð í
Þrastaskógi gullmerki UMFÍ.
Síðan var farið í Þrastalund og
snæddur hádegisverður í boði
Trausta Víglundssonar veitinga-
manns. Áður en farið var til baka
sæmdi Magnsdís Alexanders-
dóttir, Trausta Víglundsson starfs-
merki UMFÍ. Er komið var aftur
að Flúðum var þingstörfum hald-
ið áfram til kl. 18.00 en þá var gert
hlé til morguns. Á laugardags-
kvöldið var haldin mikil og góð
kvöldvaka sem var i umsjá HSK
og UMFÍ, og er óhætt að segja
það að menn hafi skemmt sér vel.
Þingstörf hófust svo aftur kl. 9.00
á sunnudagsmorgninum og þá
skiluðu nefndir af sér tillögum er
lagðar voru fyrir þingið. Tók af-
greiðsla tillagna mikinn tíma og
var ekki lokið fyrr en um kl. 15.00
en þá var gengið til kosninga.
Uppstillinganefnd skilaði þá til-
lögum sínum og dreifði atkvæða-
seðlum. Er atkvæði voru talin
kom sú staða upp að þau Magn-
dís Alexandersdóttir og Þórir
Jónsson urðu jöfn í sjötta sæti
með 30 atkvæði, svo það varð að
kjósa aftur á milli þeirra. Urðu
þau aftur jöfn með 31 atkvæði,
svo gera varð aðra tilraun, þá
hlaut Þórir 31 atkvæði en Magn-
dís 30 og fór því Þórir í aðal-
stjórn. Pálmi Gíslason var endur
kjörinn formaður UMFÍ með
miklu lófaklappi. Eftir að kosn-
ingum var lokið voru tekin fyrir
önnur mál, en síðan sleit Pálmi
Gíslason formaður UMFÍ þing-
inu og óskaði öllum góðrar heim-
komu.
Matmaöur þingsins Skúli Odds-
son framkvst. UÍA þakkar starfs-
fólki mötuneytisins fyrir matinn.
Ljósm. Skinfaxi/GG
12
SKINFAXI