Skinfaxi - 01.10.1985, Page 7
sem miða að þessu. Má segja að fólkið sé
kennt að ganga uppá nýtt. Það gefur auga
leið að þó karatemaður kunni til hlýtar
ýmis högg, spörk og varnir, þá koma þau
honum að litlum notum, ef staða fótanna
er veik.
Samhliða karatehreyfingunum verður
að stjórna önduninni á réttan hátt. Megin-
reglan er að andað er frá sér í lok hvers
höggs, varnar eða sparks. Þessi útöndun
ásamt læsingu vöðva er kallað einu nafni
KIME.
Spakmæli eitt hljóðar svo: „Enginn
keðja er sterkari en veikasti hlekkur henn-
ar“. Þetta getur átt við KIME, þ.e. ef
gleymist að læsa einum einasta vöðva frá
hnefa ofaní hæl, veikist höggið sem því
nemur, líkaminn er þá strax orðinn eftir-
gefanlegur í högginu, en markmiðið er að
höggið verði eins sterkt og unnt er.
í upphafi hvers höggs er nauðsynlegt að
slaka vel á öllum vöðvum og hafa athygl-
ina vakandi, um Ieið og merki er gefið af
þjálfara eða árás er yfirvofandi þá er hver
spenna i vöðvum til trafala, hún vinnur á
móti hreyfingunni og tefur hana. Vöðvana
á ekki að læsa fyrr en í enda höggsins.
Ekki vantar einbeitinguna hjá
þeim yngstu. Ljósm. Skiníaxi/GG
Slíkt viðbragð er æft upp sérstaklega í
karate með því að nemendur bíða viðbún-
ir eftir merki frá þjálfara. Um leið og þeir
verða þess varir eiga þeir að gera ákveðna
hreyfingu eins fljótt og þeir geta. Hér eru
æfð upp taugaboð frá heila til vöðva I
gegnum hljóðnema líkamans, eyrun.
Seinna æfa tveir saman og annar gerir
árás og hinn bregst við um leið og hann
verður var við árásina, hér er það sama
æft, nema í skynfærið eru augun og er þar
komið meir út i raunveruleikann. Með
stöðugri þjálfun er hægt að stytta við-
bragðstímann verulega. Taugaboðleiðirn-
ar verða æ óhindraðri og virkari. í karate
er þetta nefnt tæming. Sumir bestu karate-
menn heimsins virðast hafa meðfædda
hæfileika á þessu sviði.
Ég ætla að láta þetta nægja um þjálf-
unarkerfi karate, en margt er enn ósagt
eins og t.d. Agaþjálfun karate og hug-
leiðsla eða einbeitingaræfingar í byrjun
og lok hvers karatetíma.
Þetta er ekki árennilegur hópur. Ljósm. Skiníaxi/GG
Karatedeild Gerplu
I Karatedeild Gerplu æfa nú í haust um
50 manns, þar af um 35 byrjendur. Æft er
þrisvar í viku, klukkustund í senn. í deild-
inni er kenndur karatestíll sem nefnist
SHOTOKAN karate, en hann er upprunn-
inn frá Japan og einkennist af djúpum
stöðum og langdrægum höggum og
spörkum. Stillinn er langfjölmennasti
karatestíll I heiminum í dag og æfa hann
um 39% af öllum sem stunda karate, Kung
Fu og aðrar slíkar sjálfsvarnaríþróttir.
Stílafbrigði karate skipta tugum og nú er
svo komið að karate er æft í öllum heims-
álfum og flestum löndum heims.
Gerpla hefur innan sinna vébanda
marga góða keppnismenn, sem hafa stað-
ið sig vel á mótum, en vegna hversu deildin
er ung eru þetta flest ungt og upprennandi
karatefólk, sem hefur framtíðina fyrir sér
í íþrótt sinni. Karatedeildin tekur inn byrj-
endur 3—4 sinnum á ári hverju og eru allir
velkomnir til æfinga í þessari spennandi
íþrótt.
Að lokum vona ég að með þessari grein
fái lesendur örlitla innsýn i hvernig karate-
þjálfun fer fram, en sjón er sögu ríkari og
eru öll karatefélögin opin þeim sem vilja
koma að lita á æfingu.
Með Ungmennafélagskveðju,
Karl Gauti Hjaltason
GERPLU
T.v. Kjell Tveit og t.h. Karl Gauti Hjaltason. Ljósm. Skiníaxi/GG
SKINFAXI
7