Skinfaxi - 01.10.1985, Side 10
Arsþing UIA
Þing UÍA
42. ársþing UÍA var haldið á
Seyðisfirði 13. og 14. september
s.l. Fulltrúar voru 40 talsins frá 10
félögum, og er það mjög léleg
mæting því rétt til setu á þinginu
áttu 131 fulltrúar frá 33 félögum.
Samþykkt var lagabreyting þess
efnis að þingtími UÍA verði fram-
vegis á tímabilinu 20. apríl til 5.
maí og er það svipaður þingtími
og hjá öðrum héraðssambönd-
um. Þingið sóttu frá UMFÍ þeir
Sigurður Geirdal og Guðmundur
Gíslason og frá ÍSÍ kom Hannes
Sigurðsson. Þótt þingið hafi verið
fámennt var það mjög starfsamt
og líflegt í alla staði, mjög margir
tóku til máls um hin ýmsu mál og
er greinilegt að UIA hefur á að
skipa mjög duglegu og kraft-
miklu forystufólki. Mörg mál
voru á dagskrá þingsins og marg-
ar tillögur samþykktar eins og t.d.
stuðningi við áframhaldandi und-
irbúning landsmótshalds í Nes-
kaupstað 1990, að stofnað verði
skógræktarráð UÍA. Einnig fagn-
aði þingið því átaki sem gert hef-
ur verið í iþróttamálum fatlaðra i
fjórungnum, þá fagnaði þingið
bættri aðstöðu ISÍ við aðildar-
félög sín en lýsti jafnframt yfir
áhyggjum sínum á fjársvelti
ýmissa sérsambanda ÍSÍ. Þá lagði
þingið til að íþróttanefnd ríkisins
hætti útdeilingu kennslustyrkja
eftir núgildandi reglum sem að
miklu leyti hafa gilt síðan 1951.
Þess í stað verði fé þetta látið
renna í sérstakan sjóð sem skiptist
milli héraðssambanda eftir
félagafjölda og skal það renna til
fræðslumála á hverju svæði eftir
ákvörðun viðkomandi stjórnar.
Margar aðrar samþykktir voru
gerðar á þessu þingi, þvi eins og
áður sagði var þetta mjög starf-
samt þing. Á þessu þingi urðu
formannaskipti í stjórn sam-
bandsins, Hermann Níelsson sem
verið hafði formaður í mörg ár lét
nú af störfum en við tók Adólf
Guðmundsson á Seyðisfirði.
Skinfaxi vill nota þetta tækifæri
til að þakka Hermanni Níelssyni
Hermann Níelsson fyrrv. form.
UÍA. Ljósm. Skinfaxi/GG
fyrir frábær störf í hreyfingunni
með von um að hann sé nú ekki
alveg hættur að starfa fyrir hana.
Um leið býður Skinfaxi nýjan for-
Adólf Guömundsson núverandi
form. UÍA. Ljósm. Skinfaxi/GG
mann Adólf Guðmundsson vel-
kominn til starfa, en þó hann sé
ekki mjög kunnur í félagsforyst-
unni þá er hann vel þekktur í
íþróttunum bæði á leikvelli og ut-
an hans. En Adólf hefur keppt í
mörg ár með Huginn bæði i
knattspyrnu og handknattleik, þá
hefur hann einnig þjálfað hjá
Huginn í þessum íþróttagreinum
og einnig hjá UÍA. G.G.
Jóhann Hansson afhendir Hermanni gjöfírá UÍA. Ljósm. Skinfaxi/GG
10
SKINFAXI