Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.10.1985, Page 20

Skinfaxi - 01.10.1985, Page 20
Slcákþáttur Allir skákmenn, sem komnir eru til vits og ára kannast við júgóslavneska skákritið Infor- mator, sem út kemur tvisvar á ári. Hvert hefti hefur að geyma bestu skákir sem tefldar voru á liðnu hálfu ári og þær eru skýrðar af fremstu skákmeisturum heims. Er útgáfa ritsins hófst, 1966, þótti það ómissandi hverjum skák- manni enda átti það engan sinn líka. Nú er aftur svo komið að auðveldara er að afla upplýsinga og nálgast þessar skákir úr öðrum áttum en „gamli Informatorinn“ stendur þó alltaf fyrir sínu. í hverju hefti er að finna lista yfir bestu skákir í undanfarandi riti sem valdar eru af dómnefnd tiu valinkunnra skákmanna. Oft- ast hefur Karpov hlotið heiðurinn af því að eiga best tefldu skákina. íslendingar hafa sjaldan komist á blað — skák Guðmundar Sigur- jónssonar við Szabo á Reykjavík- urskákmótinu 1968 hefur náð lengst, varð í fimmta sæti. Bot- vinnik átti þá bestu skákina, Spassky þá næstbestu og Tal lenti í þriðja sæti. Guðmundur átti því bersýnilega í mikilli samkeppni. Á dögunum barst mér í hendur 39. Informatorinn, sem nær yfir skákir tefldar á fyrra helmingi þessa árs. Karpov og Kasparov eiga bestu skákina í síðasta riti, að því er dómnefndin telur. Skák nr. 27 úr einvíginu endalausa. Karpov vann skákina eftir óað- finnanlegt endatafl. í fjórða sæti á listanum er önnur skák úr ein- Botvmnik gaf Helga stig Jón L. Áinason viginu, skák nr. 48, sem jafnframt var síðasta skák þeirra félaga að svo stöddu. Campomanes, forseti FIDE, greip í taumana og frestaði einvíginu vegna þreytu keppenda. Kasparov vann síðustu skákina og það er athyglisvert að hún skyldi verða talin meðal best tefldu skáka þessa tímabils og næstbesta skák einvígisins. Hvernig geta þreyttir menn teflt svo góða skák? íslendingar eiga eina skák á þessum lista, sem lendir í 20. sæti. Það er skák Helga Ólafssonar við Hort frá ólympíuskákmótinu í Þessalóniku. Helgi fær þrjú stig fyrir skákina, tvö frá Lothar Schmid, yfirdómara í einvígi ald- arinnar i Laugardalshöllinni 1972, og eitt stig fær hann frá sjálfum Mikhail Botvinnik. Dómnefndina skipa auk þeirra, Robert Byrne, Chandler, Gligoric, Hort, Padevsky, Szabo og Smyslov. Hver dómari velur tíu bestu skákirnar að sínu mati og gefur þeirri bestu 10 stig. Helgi má vera stoltur af því að skák hans skyldi hljóta náð fyrir augum Botvinniks, sem þekktur er fyrir vísindaleg vinnubrögð og kröfuhörku. Víst er skákin vel tefld af beggja hálfu en kannski er það endataflið fyrst og fremst sem Botvinnik hefur hrifist af. Hvítt: Helgi Ólafsson Svart: Vlastimil Hort Drottningarbragð. l.Rf3 d5 2.d4 Rf6 3.c4 dxc4 4.Rc3 a6 5.e4 b5 6.e5 Rd5 7.a4 Rxc3 8.bxc3 Dd5 9.g3 Bb7 10.Bg2 Dd7 ll.Ba3 Bd5 12.0-0 Rc6 13.Hel g6 14.Bc5 Hd8 Hvítur hótaði 15.axb5 og því víkur svartur hróknum undan. Þessi leikur er annars endurbót Horts á áður tefldum skákum þar sem hróknum var leikið til b7. 15.axb5 axb5 16.Rg5 Bxg2 17.e6! Það fylgir sögunni að rétt í þann mund sem Helgi ætlaði að leika e-peðinu fram settist fluga á e6-reitinn og kom báðum kepp- endum til að brosa. Textaleikur- inn er mun sterkari en 17.Kxg2 sem svartur svarar með 17.-Bh6! og stendur vel. 17. -fxe6 Ekki 17.-Dd5? vegna 18.exf7 + Kd7 19.Dg4+ og vinnur. 18. Kxg2 Dd5 + 19.Df3 Dxf3 + 20.Kxf3 20.Kxf3 Hdd5 21.Rxe6 Kd7 22.He2 Bh6 23.Hael Ha8 24.g4 Bg5? Eftir skákina benti Hort á 24- b4! sem heldur taflinu í jafnvægi. T.d. 25.cxb4c3 26.g5! (ekki 26.b5? 20 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.