Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.10.1985, Side 25

Skinfaxi - 01.10.1985, Side 25
Fylkir og Leiftur falla nú í 3. deild á ný eftir aðeins árs dvöl í 2. deild. Það vekur umhugsun um það hvort bilið milli 2. deildar og 3. deildar hafi breikkað. Ég spái því að þessi lið bæði tvö verði í toppbaráttu 3. deildar að ári því liðin voru að mínu mati ekkert lakari en liðin um miðbik deildar- innar, einungis óheppnari. 3. deild lcarla. Lolcastaöan: SV-riðill Röfi Félag Leikir Slig Mörk 1. Selfoss 14 34 37:11 2. Grindavik 14 23 24:17 3. Reynir S. 14 22 30:20 4. ÍK 14 18 26:24 5. Ármann 14 17 19:17 6. Stjarnan 14 16 12:24 7. HV 14 14 20:26 8. Víkingur Ó. 14 8 12:41 Selfyssingar sigruðu riðilinn örugglega undir stjórn hins reynda þjálfara Magnúsar Jónatanssonar. Selfoss tók strax forystuna í riðlinum og lét hana ekki af hendi aftur. Gengi liðanna í riðlinum var annars svipað og ég reiknaði með fyrirfram nema hvað Víkingur Ólafsvík kom mér á óvart með lakri frammistöðu og falli i 4. deild. Víkingar sem bitu svo hressilega frá sér i fyrra og lentu þá í þriðja sæti riðilsins voru heillum horfnir í sumar, hvað sem olli. NA-riðill Röð Félag Leikir Stig Miirk 1. Einherji 16 36 35:17 2. Tindastóll 16 33 26:8 3. Magni 16 32 31:18 4. Leiknir F. 16 28 24:23 5. Austri 16 19 25:22 6. Valur Reyðarf. 16 17 22:28 7. Þróttur N. 16 16 22:25 8. Huginn 16 14 24:40 9. HSÞ b. 16 6 19:47 Þeir bestu sigra alltaf það sann- aðist að mínu mati í þessum riðli. Einherji var með reynt og sterkt lið sem náði forystunni þegar leið á mótið og lét hana ekki af hendi eftir það. Tvö lið féllu úr riðlinum að þessu sinni þar sem ekkert lið féll í fyrra vegna kærumáls sem upp kom. HSÞ.b. stóð uppi með að- eins sex stig og féll því en fall Hug- ins lá ekki fyrir fyrr en eftir síð- ustu umferðina en þá tapaði liðið fyrir Tindastóli á meðan Reyð- firðingar björguðu sér fyrir horn með því að sigra Leikni. Lrslitaleikir: Einherji: Selfoss 2:1 Selfoss: Einherji 2:0 Selfoss náði að sigra á heima- velli sínum með tveggja marka mun og tryggja sér þar með ís- landsmeistaratitilinn. 4. deild karla. A-riðill. Lokastaðan: Röð Félag liíikir Stig Mörk 1. ÍR 10 30 40:8 2. Grótta 10 22 24:15 3. Víkverji 10 15 17:20 4. Grundarfj. 10 13 17:24 5. Leiknir R. 10 5 19:25 6. Léttir 10 3 11:36 ÍR sigraði sinn riðil mjög glæsi- lega eða með fullt hús stiga og varð eina liðið í 4. deild sem tókst það. Sigur ÍR kemur ekki á óvart því liðið sigraði sinn riðil líka í fyrra með miklum yfirburðum en sat þá eftir með sárt ennið fyrir mikinn klaufaskap. í þessum riðli vekur athygli slæmt gengi Léttis en liðið tók þátt í úrslitakeppninni í fyrra eftir að hafa sigrað í B-riðli. B-riöill. Lokastaöan: 4. deild B riðill Röð Félag Leikir Stig Mörk 1. Hafnir 10 26 32:6 2. Afturclding 10 20 43:19 3. Hveragcrði 10 15 20:16 4. Stokkseyri 10 13 32:21 5. I>ór Þorláksh. 10 11 25:27 6. Mýrdælingar 10 0 4:67 Lið Hafna kom á óvart og sigr- aði þennan riðil nokkuð sann- færandi. Liðið lék heimaleiki sína í Keflavík og voru leikmenn þess úr Keflavík og nágrenni þannig að styrkur liðsins þarf ekki að koma svo mjög á óvart. Árangur annarra liða er eins og við mátti búast og Drangur sem nú lék undir nýju nafni vermir botnsætið sem fyrr. C-riöill. Lokastaöan: Röð Félag Leikir Stig Mörk 1. Augnablik 10 23 34:18 2. Árvakur 10 22 28:17 3. Haukar 10 17 24:19 4. Snæfell 10 9 11:17 5. Reynir H. 10 7 14:22 6. Bolungarvík 10 5 11:29 Skaupararnir úr Kópavogi sigr- uðu þennan riðil eftir spennandi keppni við Árvak, hver var að segja að þeir vildu ekki vinna. í raun voru það Haukar sem tryggðu Augnablik sigurinn með því að leggja Árvak að velli í næst síðustu umferð. Haukarnir létu reyndar ekki þar við sitja heldur tóku þeir Augnablik í kennslu- stund í lokaleik riðilsins. SKINFAXI 25

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.